Vottun verkefnastjóra: ICB 4 tekur við af ICB 3.

Fyrsta vottun skv. nýjum grunnviðmiðum.

Næsta opna vottunarferli verður opnað með kynningarfundi 17. september kl. 12:10 í Verkfræðingahúsi, Engjateig 9, kjallara.

Opið verður fyrir umsóknir til 1. október og próf haldið mánudaginn 8. október kl. 13 -16.

Eingöngu verður boðið upp á C og D stigs vottun að þessu sinni og verður fjöldi þátttakenda takmarkaður.

Til þess að hljóta vottun þurfa umsækjendur að sýna fram á þekkingu á 80% hæfnisþáttanna (A, B, C og D stig). Ennfremur þurfa umsækjendur um A, B og C stig að sýna fram á þekkingu á 50% þeirra lykilhæfnisvísa sem mynda hæfnisþættina.

Fjöldi hæfnisþátta er 28. Fjöldi lykilfæfnisvísa er 133. 

Þriðja útgáfa (ICB 3) Grunnviðmiða um hæfni verkefnastjóra er að renna sitt skeið á enda og verður þetta fyrsta vottunarferlið þar sem stuðst er við fjórðuútgáfu (ICB 4)

ICB 4 á íslensku er þegar aðgengileg hér. Umsóknargögn og leiðbeiningar eru undir flipanum Vottun 4. 

ICB 4 er flokkuð í viðfangssvið (e. domain, þ.e. verkefni, verkefnaskrá og verkefnastofn). VSF mun fyrst um sinn aðeins innleiða viðfangssviðið verkefni.

Hvert viðfangssvið hefur 3 hæfnissvið (Competence area, Eye of Competence). Hæfnissviðin eru Samhengi (Perspective), Fólk (People) og Aðferðir (Practice)

Undir hæfnissviðunum þremur eru alls 28 hæfnisþættir (Competence elements). Hver hæfnisþáttur getur haft mismunandi fjölda lykilhæfnisvísa (Key Competence Indicators).

 ICB4 viðfangssvið