Vottanir janúar 2024– Opið ferli
Kynningarfundur um IPMA vottun verkefnastjóra verður haldinn miðvikudaginn 10. janúar 2024 kl. 12:10-12:50. Kynningin er í streymi.
Fundurinn er til kynningar og opnunar á IPMA B, C og D stigs vottunarferli.
Þeir sem skrá sig á kynninguna fá sendan tengil fyrir fundinn. Skráning hér.
Í framhaldi af kynninguni verður tekið við umsóknum til 29. janúar og próf haldið 15. febrúar 2024.
Umsóknir um IPMA B, C og D stigs vottun skulu berast á netfangið vottun@vsf.is.
Prófin eru rafræn (heimapróf) og fá skráðir próftakar tengil á prófið degi fyrir prófdag en prófið er aðeins aðgengilegt á auglýstum próftíma.