VSF boðar til aðalfundar félagsins mánudaginn 4. mars 2024 kl. 17:00. Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins sem finna má hér.
Fundurinn er haldinn í húsi Verkfræðingafélagsins, Engjateig 9, kjallara.

Skráning á aðalfundinn er hér.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar.

Á aðalfundinum verður kosið um 3 stjórnarsæti og eitt sæti í varastjórn. Þeir sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarkjörs skulu tilkynna stjórn um framboð sitt skemmst 5 dögum fyrir aðalfund.

Félagar eru hvattir til að mæta á aðalfundinn og muna að skrá sig.