Haustráðstefna 2026 · Vinnustofa
6. nóvember 2026 · Aðeins ~50 sæti

Vinnustofa með Susie Palmer-Trew

Hálfsdags vinnustofa daginn eftir ráðstefnuna, 09:00–12:30. Þú kemur með raunverulegt verkefni sem þú ert að leiða – og ferð heim með aðgerðaáætlun sem þú getur byrjað á strax.

📅 Föstudagur 6. nóvember 2026 ⏱️ 09:00 – 12:30 📍 Engjateigur 9, Reykjavík 🗣️ Fer fram á ensku
SP Susie Palmer-Trew
Um vinnustofuna

The Accidental Change Manager
– breytingahugsun í raunverulegum verkefnum

Flest verkefni stranda einhvers staðar á leiðinni – og ástæðan liggur sjaldnast í verkefnastjórnuninni sjálfri, heldur í hegðun fólks. Í nánast öllum verkefnum er fólk beðið um að breyta því hvernig það vinnur, hugsar eða tekur ákvarðanir, án þess að fá nokkurn stuðning við sjálfa breytinguna. Verkefnastjórar og stjórnendur eru í vaxandi mæli látnir bera ábyrgð á þessum mannlega hluta – oftast án þjálfunar og án þess að breytingastjórnun sé formlega í þeirra höndum.

Í vinnustofunni skoða þátttakendur hvernig fólk bregst við breytingum, af hverju mótstaða er fyrirsjáanleg og hvernig umhverfið mótar hegðun. Unnið er með einföld líkön og raunveruleg dæmi – og allt er heimfært beint á verkefni sem hver þátttakandi kemur með.

🎯

Þitt eigið verkefni

Þú vinnur alla vinnustofuna með raunverulegt verkefni sem þú berð ábyrgð á núna – ekki tilbúið dæmi.

🧰

Verkfæri sem virka

Einföld líkön byggð á mannlegri hegðun, ekki kenningum einum saman.

💬

Öruggari samtöl

Meira öryggi í að takast á við mannlegu hliðina á innleiðingu og upptöku.

📋

Aðgerðir strax

Skýr skref sem þú getur hafist handa við án þess að bíða eftir formlegum breytingastuðningi.

📌 Taktu verkefni með þér. Þátttakendur eru hvattir til að koma með eitt raunverulegt verkefni, framtak eða breytingu í rekstri sem þeir bera ábyrgð á núna. Vinnustofan er hönnuð til að vera heimfærð beint á þá vinnu – og Susie útbýr vinnublað fyrir hvern þátttakanda til að byggja upp mynd af sinni breytingu.

Fyrir hverja
Verkefnastjóra, áætlanastjóra, rekstrarstjórnendur og leiðtoga sem bera ábyrgð á árangri og fólki
Form
Hálfsdags vinnustofa · 09:00–12:30 · fjögur þemu · verkfæri og verkefnavinna
Tungumál
Enska
Sæti
Aðeins ~50 – fyrstir koma, fyrstir fá
„Live, bright and furious“ – þannig lýsir Susie sjálf vinnustofunum sínum: byggðar á rannsóknum, fullar af orku, og þú ferð heim með eitthvað sem þú getur gert öðruvísi strax í næstu viku. Um vinnustofur Susie · susiepalmertrew.com
Leiðbeinandi

Hver er Susie?

Susie er með doktorsgráðu í skipulagsbreytingum (organisational change) og MSc í verkefnastjórnun, auk Prosci-vottunar í breytingastjórnun og breytingaforystu, og hefur leitt umbreytingar í skipulagsheildum í meira en 15 ár. Hún stofnaði og rekur Everyday Change og The Growth Club og hefur meðal annars unnið með AstraZeneca, British Library, Project Management Institute, ASDA og háskólunum í Liverpool og Keele – í Bretlandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum. Erindi hennar eru þekkt fyrir að vera í senn byggð á rannsóknum og full af orku: fólk fer heim með eitthvað sem það getur gert öðruvísi strax í næstu viku. Lokaerindi hennar á ráðstefnunni, The Accidental Change Manager , er kjörinn undirbúningur fyrir vinnustofuna. Lesa meira um Susie →

Fjögur þemu

Svona lítur morguninn út

Hvert þema sameinar verkfæri og aðferðir annars vegar og verklega vinnu hins vegar – þar sem þú vinnur með þitt eigið verkefni og ferð út úr hverjum hluta með áþreifanlega afurð. Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.

08:30

Húsið opnar – kaffi

Skráning og morgunkaffi.

09:00

Þema 1 · Hvað er raunverulega að breytast í þínu verkefni?

Sameiginlegur og hagnýtur skilningur á breytingu eins og fólk upplifir hana – ekki eins og henni er lýst í áætlunum og stjórnskipulagi. Breyting er hreyfing frá núverandi stöðu til framtíðarstöðu í gegnum athafnir fólks, og hún á sér stað hvort sem hún er formlega nefnd eða ekki.
Þú ferð með: skýra, skriflega lýsingu á breytingunni frá sjónarhóli fólks – tilbúna til að nota í samtölum við teymi og hagsmunaaðila.

09:45

Þema 2 · Hvernig fólk bregst við – og af hverju það er fyrirsjáanlegt

Mannleg viðbrögð útskýrð með sálfræði frekar en dómum, og mótstaða endurrömmuð sem upplýsingar. Breytingar ógna gjarnan tilfinningu fyrir eigin færni, samsömun eða stjórn – og tilfinningaviðbrögð ferðast hraðar en rökrétt útskýring.
Þú ferð með: einfalt „viðbragðskort“ sem tengir hegðun sem þú sérð við undirliggjandi orsakir, í stað þess að skrifa hana á viðhorf eða getu.

10:25

Kaffihlé

10:40

Þema 3 · Að hanna breytingu sem virkar fyrir fólk

Tími, athygli og orka eru takmarkaðar auðlindir. Breytingar krefjast endurtekningar og eftirfylgni, ekki einnar tilkynningar – og oft skilar það meiru að létta álagið en að leggja harðar að sér.
Þú ferð með: endurskoðaða nálgun á einn mikilvægan þátt verkefnisins þíns – léttari, skýrari og sjálfbærari.

11:25

Þema 4 · Breytingaforysta innan þíns hlutverks og valdsviðs

Breytingaforysta er ábyrgð, ekki starfsheiti – og áhrif skipta oftar máli en formlegt vald. Þátttakendur skilgreina eitt sem þeir hætta að gera, eitt samtal sem þeir taka öðruvísi og eina breytingu á umhverfinu sem auðveldar nýja hegðun.
Þú ferð með: stutta og raunhæfa aðgerðaáætlun sem hægt er að hefja strax í núverandi verkefni.

12:10

Samantekt og næstu skref

Farið yfir afurðirnar fjórar og hvernig þær tengjast saman í eina mynd af þinni breytingu.

12:30

Vinnustofu lýkur

⟦Léttur hádegisverður?⟧

Að vinnustofu lokinni

Hvað tekurðu með þér?

🔍

Skýrari mynd

Þú hefur heimfært breytingahugsun beint á lifandi verkefni og sérð áskorunina skýrar en áður.

⚙️

Hagnýt verkfæri

Verkfæri sem byggja á mannlegri hegðun – ekki kenningum einum saman.

💪

Meira öryggi

Meira sjálfstraust í að takast á við mannlegar áskoranir í innleiðingu.

✅

Skýrar aðgerðir

Aðgerðir sem þú getur hafist handa við án þess að bíða eftir formlegum breytingastuðningi.