Haustráðstefna 2026 · Fyrirlesarar
5. nóvember 2026 · Hilton Reykjavík

Fyrirlesarar 2026

Þema ársins er Verkefnastjórinn – leiðtogi í breytilegum heimi . Hér kynnumst við fólkinu sem stígur á svið: þremur aðalfyrirlesurum, fjórum fyrirlesurum úr íslensku atvinnulífi og tveimur örfyrirlestrum um verkfæri.

Aðalfyrirlesarar

Þrjú ólík sjónarhorn á forystu

Aðalfyrirlesari SP Susie Palmer-Trew

Susie Palmer-Trew

Dr. Susie Palmer-Trew · Everyday Change · ráðgjafi, fyrirlesari og höfundur · Bretland

🎤 Lokaerindi 📅 6. nóv – Vinnustofa Enska
The Accidental Change Manager

Flest sem stýra verkefnum eða teymum enda á því að leiða breytingar – hvort sem það var ætlunin eða ekki. Þau eru beðin um að breyta hegðun, innleiða ný kerfi, forgangsraða upp á nýtt eða hjálpa fólki að sleppa gömlum vinnubrögðum. Samt fá fáir nokkurn tímann að læra hvernig fólk bregst raunverulega við breytingum, sérstaklega undir álagi, í óvissu eða þreytu.

Erindið er hagnýtt og byggt á rannsóknum – fyrir verkefnastjóra, stjórnendur og leiðtoga sem bera ábyrgð á árangri breytinga. Susie skoðar hvernig breytingar virka í raun í skipulagsheildum, ögrar hugmyndinni um að breytingastjórnun sé „mjúk“ eða snúist bara um upplýsingagjöf, og sýnir hvernig skilningur á hegðun, tilfinningum og orku fólks bætir innleiðingu, upptöku og árangur beint. Þátttakendur fara heim með skýrari mynd af því hvers vegna fólk bregst við eins og það gerir – og hvað þau geta gert öðruvísi, strax.

Susie er með doktorsgráðu í skipulagsbreytingum (organisational change) og MSc í verkefnastjórnun, auk Prosci-vottunar í breytingastjórnun og breytingaforystu, og hefur leitt umbreytingar í skipulagsheildum í meira en 15 ár. Hún stofnaði og rekur Everyday Change og The Growth Club og hefur meðal annars unnið með AstraZeneca, British Library, ASDA og háskólunum í Liverpool og Keele – í Bretlandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum.

Vinnustofa með Susie 6. nóv →
Aðalfyrirlesari EB Edda Björgvinsdóttir

Edda Björgvinsdóttir

Leikkona og fyrirlesari

Íslenska
Húmor og hamingja á vinnustað – dauðans alvara

Rannsóknir sýna að húmor er öflugt verkfæri til að auka hamingju einstaklinga – og hamingjusamt fólk á auðveldara með að nýta styrkleika sína og hæfileika. Starfsfólk sem upplifir gleði og vellíðan í starfi þjáist síður af streitu, ótta og óöryggi; andrúmsloftið verður betra, tjáskipti hreinni og lífs- og starfsorkan meiri. Sömu rannsóknir sýna einnig að ónæmiskerfið styrkist til muna eftir því sem hamingjan eykst. Í erindinu skoðum við samskiptatækið húmor frá mörgum hliðum og möguleikana á að auka hamingju, efla gleði og bæta starfsánægju.

Edda hefur lokið meistaranámi í menningarstjórnun, þar sem MA-ritgerð hennar fjallaði um húmor í stjórnun, auk diplómanáms á meistarastigi í jákvæðri sálfræði og sálgæslu. Hún hefur haldið fyrirlestra og námskeið í velflestum fyrirtækjum landsins og kennt í Endurmenntun HÍ, Bifröst, HR og HA.

Aðalfyrirlesari ÞH Þórir Hergeirsson

Þórir Hergeirsson

Handknattleiksþjálfari og faglegur ráðgjafi

Íslenska
Hvernig byggjum við góða liðsheild?

Þórir fer yfir hvernig góð liðsheild er byggð upp innan afreksíþrótta – og hvað verkefnateymi geta lært af því. Komið er inn á virka þátttöku í gilda- og menningarvinnu til að skapa eignarhald, kröfur til og skuldbindingu einstaklingsins gagnvart hópnum, styrkleikamiðaða nálgun og fleira.

Þórir er fæddur og uppalinn á Selfossi en hefur búið í Noregi frá 1986, þar sem hann lauk íþróttakennaranámi og meistaragráðu í íþróttasálfræði og þjálfun. Hann var aðalþjálfari norska kvennalandsliðsins í handknattleik 2009–2024 og stýrði liðinu á 20 stórmótum með 17 verðlaunum, þar af 11 gullum – eftir að hafa verið í þjálfarateymi Marit Breivik 2000–2008. Í dag er hann ráðgjafi hjá HSÍ, coach fyrir norska landsliðsþjálfara hjá Olympiatoppen og sinnir fyrirlestrum og ráðgjöf í gegnum Thorir AS.

Fyrirlesarar

Úr íslenskum veruleika

AG Andri Geirsson

Andri Geirsson

Þjónustuhönnuður · Reykjavíkurborg

Íslenska
Við vitum minna en við höldum – að leiða í óvissu

Það hefur aldrei verið auðveldara að fá svör og lausnir – en hvað gerist ef við stöldrum við og horfum inn á við? Hvað ef við höldum aftur af okkur, fögnum óvissunni og sitjum í henni? Andri hefur undanfarinn áratug leitt hagaðila, teymi og hópa fólks í gegnum breytingar, óvissu og almenna óreiðu. Í þessum einleik stefnir hann að því að miðla hugarfari fararstjórans sem er staddur á Mars.

Andri er þjónustuhönnuður og hefur í tæpan áratug leitt umbreytingaverkefni, stafræn og ekki, hjá Reykjavíkurborg. Utan borgarveggjanna vinnur hann fyrir Humar&lauk, þar sem hann hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að móta metnaðarfulla framtíðarsýn og að kortleggja og hanna þjónustu sem mætir þörfum viðskiptavina og hagaðila. Undanfarin ár hefur hann einnig haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða um breytingar og hönnun þjónustu, meðal annars hjá Hyper Island og Háskóla Íslands.

LH Lárus Hjartarson

Lárus Hjartarson

Gervigreindarráðgjafi · Peritus

Íslenska
Þitt eigið gervigreindarkerfi – verkefnastjórinn sem skalar sjálfan sig

Verkfærin eru nú þegar til staðar; það sem vantar er kerfið. Lárus fjallar um hvernig verkefnastjóri setur upp sitt eigið gervigreindarkerfi – ekki stakar fyrirspurnir í spjallglugga, heldur uppsett vinnulag þar sem gervigreindin les verkefnin þín, heldur utan um stöðu og ákvarðanir og vinnur endurtekin verk með þér. Hvernig maður byrjar smátt, byggir upp í lögum og lætur kerfið vaxa með sér. Raunhæf dæmi úr daglegri verkefnastjórnun – engin forritunarkunnátta nauðsynleg.

Lárus er stofnandi og ráðgjafi hjá Peritus, sem vinnur með fyrirtækjum og opinberum stofnunum að gervigreind, hugbúnaðarþróun, öryggi, DevOps, innviðum og tæknilegum útboðum. Peritus er rekið sem gervigreindardrifið fyrirtæki og Lárus keyrir sjálfur kerfið sem hann fjallar um yfir alla verkefnastjórn og hugbúnaðarþróun fyrirtækisins.

JK Jónas Ketilsson

Jónas Ketilsson

Verkefnastjóri · Landsvirkjun · IPMA Level A

Íslenska
Hvernig látum við drauma rætast? Um forystu, verkefnastjórnun og að breyta framtíðarsýn í veruleika

Stór verkefni byrja oft á framtíðarsýn – hugmynd um eitthvað sem er ekki enn orðið að veruleika. En hvað þarf til að færa hugmynd frá framtíðarsýn yfir í raunverulegan árangur? Í erindinu veltir Jónas upp hlutverki verkefnastjórnunar og forystu í því að láta hluti gerast. Hvernig sköpum við sameiginlega sýn, fáum fólk með okkur og höldum stefnu þegar verkefnin verða flókin, óvissan eykst og forsendur breytast? Með dæmum úr eigin vegferð verður fjallað um samspil framtíðarsýnar, forystu og verkefnastjórnunar – og þá gömlu en sígildu spurningu: Hvað þarf í raun til að láta drauma rætast?

Jónas er verkefnastjóri hjá Landsvirkjun og IPMA Level A vottaður verkefnasafnstjórnandi. Hann hefur stýrt stórum og flóknum verkefnum og verkefnaheildum á sviði orkumála og starfað við verkefnastjórnun, stefnumótun og breytingar bæði hér á landi og á alþjóðlegum vettvangi. Jónas hefur jafnframt kennt og leiðbeint á sviði verkefnastjórnunar og jarðhita og vinnur að þróun faggreinarinnar sem varaformaður Verkefnastjórnunarfélags Íslands. Hann hefur sérstakan áhuga á því hvernig framtíðarsýn, forysta og verkefnastjórnun tengjast – og hvernig leiðtogar skapa aðstæður þar sem sérfræðingar geta saman breytt hugmyndum í raunverulegan árangur.

AH Auður Guðríður Hafliðadóttir

Auður Guðríður Hafliðadóttir

Verkefnastjóri · Veitur

Íslenska
Frá hugmynd að verklokum – aðfangaferill og samþykktarhlið

Veitur vinna markvisst með aðfangaferil verkefna og samþykktarhlið í verkefnastjórnun til að stýra framkvæmdum frá upphafi til enda. Lögð er áhersla á tengingu við fjármögnun, skýra áfanga og ábyrga lokaafhendingu.

Auður er verkefnastjóri með MS-gráðu í verkefnastjórnun og hefur mikinn áhuga á skipulagi og því að leiða verkefni farsællega frá upphafi til enda. Hún lauk meistaranáminu í júní 2023 og hefur starfað sem verkefnastjóri hjá Veitum frá febrúar 2024.

Hagnýtir örfyrirlestrar

Praktísk nálgun – verkfæri sem virka

Hröð, hnitmiðuð erindi með praktíska nálgun: fagfólk sýnir verkfærin sem það notar í raun og segir frá reynslunni – ekkert aðferðafræðilegt yfirlit, bara það sem nýtist á mánudagsmorgni.

Örfyrirlestur MÁ Margrét Eva Árnadóttir

Margrét Eva Árnadóttir

Miðlægur verkefnastjóri · Landspítali

Íslenska
Allir vegir færir með Miro

Verkefnastofa Landspítala hefur í auknum mæli nýtt sér Miro, stafræna hvíttöflu, í verkefnum og fyrir vinnustofur. Sýnd verða dæmi um notkun ásamt stuttum reynslusögum.

Margrét útskrifaðist með MPM-gráðu 2010 og hefur starfað sem verkefnastjóri, ráðgjafi og þjónustuhönnuður. Hún hugsar myndrænt og vill skila upplýsingum til hagaðila á skýran og einfaldan hátt – og átta sig fljótt á heildarmyndinni og hvernig allt tengist. Miro er eitt af hennar aðalverkfærum og í notkun á hverjum einasta degi.

Örfyrirlestur LL Linda Lyngmo

Linda Lyngmo

Forstöðumaður stafrænnar þróunar · Hagar

Íslenska
Gervigreindin breytir leiknum – hvað þýðir það fyrir verkefnastjórnun?

Gervigreind er ekki lengur aðeins tæknilegt nýsköpunarverkefni heldur afl sem er að breyta því hvernig fyrirtæki starfa, hvernig við tökum ákvarðanir og hvernig við vinnum verkefni. En hvernig breytum við möguleikum gervigreindar í raunverulegan ávinning? Í erindinu verður fjallað um hvernig gervigreind er að umbreyta vinnulagi fyrirtækja og hvaða tækifæri og áskoranir hún skapar fyrir verkefnastjórnun – hvernig nýta má hana til að auka skilvirkni, styðja við ákvarðanatöku og endurskoða hefðbundnar leiðir við skipulagningu og framkvæmd verkefna.

Jafnframt verður horft til þess hvernig hlutverk verkefnastjórans þróast þegar tæknin tekur að sér fleiri verkefni. Hvaða færni verður mikilvægari? Hvernig tryggjum við að hraðari framkvæmd skili raunverulegum árangri? Og hvernig leiðum við fólk og skipulagsheildir í gegnum breytingar sem eiga sér stað á sífellt meiri hraða? Með hliðsjón af reynslu af stafrænni þróun og tæknilegri umbreytingu hjá Högum verður fjallað um samspil gervigreindar, verkefnastjórnunar og breytingastjórnunar – og hvað þarf til að fara frá því að prófa nýja tækni yfir í að skapa varanlegt virði.

Viltu hlusta á þau öll?

Heill dagur af forystu, breytingum og hagnýtum verkfærum – 5. nóvember á Hilton Reykjavík. Almennt verð gildir til 29. október.