Stór áfangi fyrir IPMA vottanir á Íslandi 🏅

20. maí 2026

Aukið úrval í alþjóðlegum vottunum í verkefnastjórnun

VSF Vottun hefur hlotið endurnýjaða IPMA validation viðurkenningu til ársins 2028 fyrir verkefna-, verkefnaskrár- og verkefnastofnvottanir á öllum stigum A–D.


Það sem gleður okkur sérstaklega er að íslenska vottunarkerfið hefur nú stækkað verulega:
✅ IPMA Level A vottanir komnar formlega inn
✅ Fyrstu Programme Director og Portfolio Director vottanirnar að detta inn á Íslandi
✅ Aukið svigrúm fyrir PMO, Agile forystu, Sjálfbærni í verkefnastjórnun og fleiri sérhæfðar leiðir
✅ Alþjóðlega viðurkennt kerfi sem stenst nýjustu IPMA ICR 4.4 kröfur

Árið 2025 hóf VSF móttöku á fyrstu IPMA A umsóknunum á Íslandi og þegar hefur
Jónas Ketilsson hlotið fyrstu virku IPMA Level A vottun landsins sem Certified Programme Director. 
Þar að auki hafa
Stuart Maxwell og Þröstur Freyr Gylfason hlotið vottunina IPMA B - Certified Senior Programme Manager.


Umsóknum um alþjóðlega vottun í verkefnastjórnun hefur fjölgað verulega og á síðasta ári var slegið nýtt Íslandsmet.
Þetta hefði ekki gerst án framúrskarandi hóp af fólki sem leggur sitt af mörkum: faglegir matsaðilar, öflug stjórn, sjálfboðaliðar í fjölbreyttum hlutverkum, alþjóðlegt samstarf við IPMA og allir þeir verkefnastjórar sem hafa treyst okkur fyrir sinni faglegu vegferð ❤️

Eftir Stefna Hugbúnaðarhús • 21. ágúst 2024
Haustráðstefna VSF er óðum að taka á sig mynd.
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús • 26. júlí 2024
Stjórn VSF hefur gengið frá ráðningu Agnesar Hólm Gunnarsdóttur sem nýrrar framkvæmdastýru félagsins. Agnes hefur töluverða reynslu af verkefnastjórnum, en hún hefur m.a. verið deildarstjóri
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús • 4. júlí 2024
Próf f. IPMA D-vottun mán 9.sept kl. 14:00 - Próf f.IPMA C-vottun þri 10.sept kl. 14:00