Ný stjórn kjörin hjá VSF

11. maí 2026

VSF heldur áfram að vaxa með öflugu samfélagi fagfólks

Á aðalfundi VSF var kjörin ný stjórn – og það sem gleður okkur sérstaklega er að í fyrsta sinn í langan tíma voru frambjóðendur fleiri en þau sæti sem voru í boði. Það segir sína sögu um þann kraft, áhuga og metnað sem nú ríkir í kringum fagið okkar – verkefnastjórnun á Íslandi.


VSF er á hraðri uppleið og við finnum skýrt fyrir auknum áhuga á faglegri verkefnastjórnun. Samfélagið þarf á góðri verkefnastjórnun að halda meira en nokkru sinni fyrr, og það er afar hvetjandi að sjá sífellt fleiri vilja leggja sitt af mörkum til að efla bæði fagið og samfélagið okkar.


Við erum einstaklega þakklát fyrir allt það öfluga sjálfboðaliðastarf sem unnið er innan félagsins. Án þessa frábæra hóps væri þessi vegferð einfaldlega ekki möguleg.


Fram undan eru spennandi tímar, ný tækifæri og áframhaldandi uppbygging. 🚀


Við bjóðum nýja stjórnarmeðlimi hjartanlega velkomna og hlökkum til samstarfsins:


Ný í stjórn eru:

  • Jónas Ketilson (Landsvirkjun) – varaformaður
  • Ylfa Rakel Ólafsdóttir (Vegagerðin) – gjaldkeri
  • Auður Íris Ólafsdóttir (Hagar) – varamaður
  • Salvör Gyða Lúðvíksdóttir (Reykjavíkurborg) – varamaður


Áfram sitja í stjórn:

  • Aðalbjörn Þórólfsson (Projectus) – formaður
  • Bryndís Pjetursdóttir (Seðlabanki Íslands) – meðstjórnandi
  • Georg Kristinsson (Avians) – ritari og IPMA REG Director
  • Íris Dögg Jónsdóttir (Isavia) – meðstjórnandi og IPMA KIDS Director
  • Sandra Gestsdóttir (Landspítali) – meðstjórnandi
  • Viktor Steinarsson (Advania) – meðstjórnandi


Við þökkum jafnframt Hugrúnu Ösp Reynisdóttur og Sigfríði Guðjónsdóttur kærlega fyrir þeirra mikilvæga framlag til stjórnarstarfsins síðustu ár. Það gleður okkur að báðar munu halda áfram að starfa með VSF á öðrum vettvangi. 🎈


Að lokum viljum við þakka öllum sem buðu sig fram og öllum þeim sem leggja félaginu lið með einum eða öðrum hætti. Það er þessi samheldni og kraftur sem gerir okkur kleift að efla verkefnastjórnun á Íslandi – saman. 💙


Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 21. ágúst 2024
Haustráðstefna VSF er óðum að taka á sig mynd.
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 26. júlí 2024
Stjórn VSF hefur gengið frá ráðningu Agnesar Hólm Gunnarsdóttur sem nýrrar framkvæmdastýru félagsins. Agnes hefur töluverða reynslu af verkefnastjórnum, en hún hefur m.a. verið deildarstjóri
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 4. júlí 2024
Próf f. IPMA D-vottun mán 9.sept kl. 14:00 - Próf f.IPMA C-vottun þri 10.sept kl. 14:00