IPMA hefur gefið út ICB5!
18. nóvember 2026

ný hæfniviðmið IPMA og hvað þau þýða fyrir vottun hjá VSF

IPMA hefur gefið út fimmtu útgáfu hæfniviðmiða sinna, IPMA ICB5. ICB er grunnurinn að allri IPMA vottun, og nú fá verkefnastjórar ný og uppfærð viðmið sem endurspegla hvernig starfið hefur breyst síðustu tíu ár 😊
Hvað er nýtt?
- Þrjár sjálfstæðar bækur: ein fyrir verkefni, ein fyrir verkefnastofna og ein fyrir verkefnaskrár.
- 30 hæfniþættir í hverju viðfangsefni, í stað 28 eða 29 áður. Hæfniaugað heldur sér með sínum þremur hæfnisviðum: Samhengi, Fólk og Aðferðir.
- Tveir nýir hæfniþættir: sjálfbærniábyrgð (Sustainability Stewardship) og stafræn hagnýting (Digital Enablement).
- Ný heiti þriggja þátta:Innkaup verða innkaup og samningastjórnun.
- Áætlun og stýring verður áætlun, stýring og aðlögun.
- Breytingar verða breytingar og umbreyting skipulagsheilda.
- Rauðir þræðir gegnum allt: sjálfbærni, stafræn tækni og gervigreind, aðlögunarhæfni, dreifð teymi og áhersla á ávinning og virði, ekki bara afurðir.
Hvað þýðir þetta fyrir þig sem stefnir á vottun?
- Í desember 2026 koma ný umsóknargögn á vsf.is.
- Í febrúar 2027 hefst próftaka samkvæmt ICB5.
- Allt árið 2027 er enn hægt að sækja um samkvæmt ICB4. Próf á þessu tímabili ná þó líka yfir tvo nýja ICB5 þætti, svo það borgar sig að kynna sér þá. Allir umsækjendur eru minntir á þetta í umsóknarferlinu
- Frá 1. janúar 2028 tökum við ekki lengur við umsóknum á gömlu ICB4 eyðublöðunum.
VSF vottar áfram í öllum þremur viðfangsefnunum, verkefnum, verkefnastofnum og verkefnaskrám, á stigum A og B.
Stig C og D eru einunis fyrir verkefni.
Ertu að velta fyrir þér vottun eða hvar þú stendur? Hafðu samband á vottun@vsf.is, við komum gjarnan með kynningafund á vinnustaðinn þinn - einnig geturðu skráðu þig á rafrænar kynningafund á viðburðasíðu VSF.



