Haustráðstefna VSF 2026

Verkefnastjórinn - leiðtogi í breytilegum heimi

Stærsti viðburður ársins í verkefnastjórnun á Íslandi. Heill dagur um forystu, breytingar og það sem þarf til að leiða verkefni í heimi sem stendur aldrei í stað.

📅 5. nóvember 2026 📍 Hilton Reykjavík · Suðurlandsbraut 2 ⏱️ 08:30 – 16:30 🗣️ Fyrirlestrar á íslensku og ensku
Venjulegt verð til 29. október.
Síðustu vikuna bætast 5.000 kr við — skráðu þig fyrir:
00
Dagar
00
Klst
00
Mín
00
Sek
Ráðstefnan er 5. nóvember · Hilton Reykjavík Nordica
Af hverju að mæta

Einn dagur sem borgar sig allt árið

Í síbreytilegu starfsumhverfi, þar sem tækninýjungar og nýjar áskoranir móta vinnudaginn, snýst árangur ekki bara um aðferðir — heldur um forystu. Haustráðstefnan 2026 skoðar hvernig verkefnastjórinn verður leiðtoginn sem leiðir fólk og verkefni í gegnum breytingar.

🧠

Lærðu af þeim bestu

Erindi og vinnustofa frá reyndu fagfólki sem hefur leitt verkefni af ýmsum toga á Íslandi og erlendis.

🤝

Stækkaðu tengslanetið

Hittu hundruð verkefnastjóra, stjórnenda og fagfólks á einum stað — þar sem næsta samstarf verður til.

🌍

Alþjóðleg viðmið

VSF er hluti af IPMA (International Project Management Association). Þú færð innsýn í bestu aðferðir á heimsmælikvarða, yfirfærðar í íslenskan veruleika.

⚡

Hagnýtt strax

Verkfæri, aðferðir og hugmyndir sem þú getur tekið beint inn í þín eigin verkefni.

Dagskrá

Verkefnaáætlun dagsins

Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar — tímar og erindi geta ennþá tekið smávægilegum breytingum.

08:30

Húsið opnar — morgunkaffi & tengsl

Skráning og kaffi áður en dagskráin hefst.

09:00

Setning ráðstefnu

Aðalbjörn, formaður VSF, setur ráðstefnuna.

09:15

Húmor og hamingja á vinnustað — dauðans alvara

Edda Björgvinsdóttir, leikkona og fyrirlesari.

10:00

Verkefnastjórinn sem leiðsögumaður í óvissu

Andri Geirsson, Reykjavíkurborg — þjónustuhönnun, vinnustofur og lóðsun sem koma teymum frá „við vitum ekki alveg hvað við eigum að gera“ yfir í skýra næstu aðgerð.

10:30

Kaffihlé & kynningarbásar

Teygðu úr þér, hittu fólk og kíktu á kynningarbásana.

10:50

Þitt eigið gervigreindarkerfi — verkefnastjórinn sem skalar sjálfan sig

Lárus Hjartarson, Peritus — hvernig þú setur upp gervigreindarkerfi sem les verkefnin þín, heldur utan um stöðu og vinnur endurtekin verk með þér. Engin forritunarkunnátta nauðsynleg.

11:20

Örfyrirlestrar: Verkfæri í verkefnastjórnun

Hröð, hnitmiðuð erindi um verkfæri — Margrét Eva Árnadóttir, Landspítali (Miro) og Linda Lyngmo, Hagar (gervigreind í verkefnastjórnun).

12:00

Hádegisverður & tengslatorg

Veitingar og tími til að hitta fólk og fyrirtæki.

13:00

Hvernig byggjum við góða liðsheild?

Þórir Hergeirsson, handknattleiksþjálfari og ráðgjafi — um forystu, liðsuppbyggingu og hvað þarf til að ná árangri með hópi.

13:45

Hvernig látum við drauma rætast?

Jónas Ketilsson, Landsvirkjun — um forystu, verkefnastjórnun og að breyta framtíðarsýn í veruleika.

14:15

Kaffihlé & kynningarbásar

Síðasta tækifærið til að kíkja á básana og spjalla.

14:35

Frá hugmynd að verklokum — aðfangaferill og samþykktarhlið

Auður Guðríður Hafliðadóttir, Veitur — markviss stýring framkvæmda frá upphafi til enda, með áherslu á fjármögnun, skýra áfanga og ábyrga lokaafhendingu.

15:05

Lokaerindi: The Accidental Change Manager

Susie Palmer-Trew — alþjóðlegur aðalfyrirlesari (erindi á ensku). Hvernig breytingar virka raunverulega í skipulagsheildum og hvað bætir innleiðingu, upptöku og árangur þegar fólk þarf óvænt að leiða breytingar.

16:05

Lokun ráðstefnu

Aðalbjörn slítur ráðstefnu — verkefninu er lokið. 🎉

16:15

Kokteill fyrir þau sem vilja 🥂

Valfrjálst — léttar veitingar og spjall til kl. 17:00 fyrir þau sem vilja staldra við og rækta tengslin.

📅 Tveir dagar. Ráðstefnan er 5. nóvember og daginn eftir, 6. nóvember, er hálfsdags vinnustofa með Susie Palmer-Trew. Þú getur skráð þig á annað hvort — eða hvort tveggja.

Um vinnustofuna →
Innifalið í verðinu

Meira en bara dagskrá

Með skráningu færðu heildstæða upplifun — ekki bara erindi, heldur dag þar sem fólk lærir, tengist og nýtur samvista. Sumir kalla Haustráðstefnu VSF „árshátíð verkefnastjóra á Íslandi“.

☕ Morgunhressing 🍽️ Heitur hádegisverður 🥂 Léttur kokteill í lok dags 📚 Glærur & fræðsluefni
Nýtt í ár

Kynningarbásar í hléum

Í ár bjóðum við upp á kynningarbása sem þú getur skoðað í hléum — kjörið tækifæri til að spjalla, spyrja og kynna þér það sem er í boði í faginu.

🎓

Nám í verkefnastjórnun

Háskólarnir kynna nám í verkefnastjórnun sem er tengt IPMA vottun hjá VSF — fyrir þau sem vilja byggja upp eða dýpka fagþekkingu sína.

🏅

Alþjóðlegar IPMA vottanir

VSF kynnir alþjóðlegar IPMA vottanir í verkefnastjórnun — hvað þær eru, hvernig matsferlið virkar og hvað þær gera fyrir starfsferilinn þinn.

🚀

Félag ungra verkefnastjóra

FUV, sem er einnig hluti af alþjóðasamstarfinu IPMA Young Crew, kynnir félagið: samfélag ungs fagfólks í verkefnastjórnun, viðburði og tengslanet bæði hérlendis og erlendis.

Kynntu þér FUV →

Skráning & verð

Tryggðu þér sæti

Ráðstefnan er opin öllum — líka þeim sem eru utan VSF. Skráðu þig á ráðstefnuna, vinnustofuna eða hvort tveggja í sama skráningarforminu.

5. nóvember

Ráðstefnan

Heill dagur af dagskrá, mat og tengslum

44.900 kr · VSF félagar

Aðrir þátttakendur: 49.900 kr

⏰ Verð gildir til 29. október — síðustu vikuna bætast 5.000 kr við

  • Öll dagskráin með báðum aðalfyrirlesurum
  • Morgunhressing & heitur hádegisverður
  • Léttur kokteill í lok dags
  • Aðgangur að kynningarbásum & glærur eftir á
Skráning og verð →
6. nóvember

Vinnustofa með Susie

Hálfsdags vinnustofa daginn eftir

35.700 kr · VSF félagar

Aðrir þátttakendur: 40.700 kr

⏰ Verð gildir til 29. október — síðustu vikuna bætast 5.000 kr við

  • Vinnustofa með Susie Palmer-Trew
  • Hagnýt verkfæri í breytingastjórnun
  • 🔥 Aðeins ~50 sæti — fyrstir koma, fyrstir fá
Um vinnustofuna →

📅 Verðþrep — skráðu þig snemma og sparaðu

Forsölu lauk 15. ágúst. Venjulegt verð gildir til 29. október; síðustu vikuna fyrir ráðstefnu bætast 5.000 kr. við.

Ástæðan er einföld: viku fyrir viðburð staðfestum við fjölda sæta, veitingar, nafnspjöld og annað skipulag. Skráningar á allra síðustu dögum kalla oft á aukavinnu og meiri óvissu um aðföng og þjónustu.

Með því að skrá þig snemma:

  • ✅ tryggir þú þér lægsta verðið
  • ✅ hjálpar þú okkur að skipuleggja viðburðinn betur
  • ✅ stuðlar þú að betri upplifun fyrir alla þátttakendur

💡 Félagar fá afslátt af bæði ráðstefnu og vinnustofu — og líka af IPMA-vottunum og viðburðum allt árið. Aðild kostar frá 6.490 kr og borgar sig strax.

Gerast félagi fyrst →
Samstarfsaðilar

Í góðum félagsskap

Þessi fyrirtæki styðja ráðstefnuna í ár. Hafðu samband ef fyrirtækið þitt vill bætast í hópinn.

★ Gullstyrktaraðilar
Silfurstyrktaraðilar
Senda fyrirspurn um samstarf
Algengar spurningar

Gott að vita

Fæ ég afslátt sem félagi í VSF?

Já! Félagar greiða lægra verð af bæði ráðstefnu og vinnustofu, og fá líka afslátt af IPMA-vottunum og aðgang að faghópum og vinnustofum allt árið. Aðild kostar frá 6.490 kr fyrir einstaklinga — afslátturinn af þessum eina viðburði borgar hana nánast strax.

Hver er munurinn á ráðstefnu og vinnustofu?

Ráðstefnan er 5. nóvember með fullri dagskrá, mat og kokteil. Vinnustofan er hálfsdags vinnustofa með Susie Palmer-Trew daginn eftir, 6. nóvember, með takmörkuðum fjölda sæta (aðeins ~50 pláss). Þú getur skráð þig á annað hvort eða hvort tveggja í sama forminu.

Hvernig fer greiðsla fram?

Reikningur og krafa í banka eru send á greiðanda eftir skráningu, með 14 daga greiðslufresti. Greiðsla gildir sem staðfesting á sæti. Vinsamlega tryggðu að greiðandaupplýsingar séu réttar.

Get ég skráð allt teymið?

Að sjálfsögðu. Hafðu samband við vsf@vsf.is fyrir hópaskráningu.

Ég er í námi — hvað á ég að gera?

Gerstu nemafélagi í VSF á 2.990 kr og fáðu strax félagsverð á ráðstefnu og vinnustofu. Það er langhagkvæmasta leiðin fyrir nemendur og þú færð líka aðgang að Félagi ungra verkefnastjóra (IPMA Young Crew) samfélaginu.

Skráning & skilmálar

Svona skráir þú þig

Þú skráir þig á ráðstefnuna, vinnustofuna eða hvort tveggja í sama forminu. Reikningur og krafa í banka eru send á greiðanda — greiðsla staðfestir sætið. Athugið að það eru takmörkuð pláss, sérstaklega á vinnustofunni.

⏰

Skráðu þig snemma

Tryggðu þér sæti tímanlega — pláss eru takmörkuð. Skráning þarf að berast í síðasta lagi 3 dögum fyrir viðburð svo hægt sé að staðfesta veitingar. Skráningar eftir það geta borið aukagjald.

💳

Greiðsla

Reikningur sendur á greiðanda með 14 daga greiðslufresti. Greiðsla gildir sem staðfesting á sæti.

↩️

Afbókun

Full endurgreiðsla fram að 22. október. Eftir það er hægt að framselja sætið með því að láta vsf@vsf.is vita fyrir 3. nóvember.

Með skráningu samþykkir þú að VSF megi hafa samband vegna ráðstefnunnar og tengdra viðburða. Þú getur alltaf afskráð þig.