Fyrsta IPMA A-vottun Íslands á sviði þjálfunar og kennslu í verkefnastjórnun

25. maí 2026

This is a subtitle for your new post

Fyrsta IPMA A-vottun Íslands á sviði þjálfunar og kennslu í verkefnastjórnun

Helgi Þór Ingason, prófessor við Háskólann í Reykjavík og formaður stjórnar MPM meistaranámsins í verkefnastjórnun, hefur hlotið IPMA Level A – Certified Executive Trainer (CET) viðurkenningu frá IPMA (International Project Management Association), móðurfélagi Verkefnastjórnunarfélags Íslands (VSF).


Um er að ræða hæstu alþjóðlegu vottun IPMA á sviði kennslu, þjálfunar og hæfniuppbyggingar í verkefnastjórnun og er Helgi fyrsti Íslendingurinn til að hljóta þessa viðurkenningu.

Áður hefur Aðalbjörn Þórólfsson, formaður VSF og ráðgjafi hjá Projectus, hlotið IPMA B – Certified Consultant, Coach and Trainer (CCT) vottun.



Vottunin staðfestir framúrskarandi hæfni í þróun námsleiða, stjórnendaþjálfun og alþjóðlegri hæfnibyggingu. Matsferlið er umfangsmikið og felur meðal annars í sér ítarlegt sjálfsmat, hæfnimat, reynsluskýrslur og viðtöl við alþjóðlega úttektarmenn.


Við hjá VSF fögnum þessum mikilvæga áfanga fyrir fagið hérlendis. Á sama tíma er unnið að því að bjóða upp á IPMA CCT/CET vottanir á Íslandi á næstu misserum fyrir kennara, leiðbeinendur, þjálfara og ráðgjafa á sviði verkefnastjórnunar og tengdra greina.

Eftir Stefna Hugbúnaðarhús • 21. ágúst 2024
Haustráðstefna VSF er óðum að taka á sig mynd.
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús • 26. júlí 2024
Stjórn VSF hefur gengið frá ráðningu Agnesar Hólm Gunnarsdóttur sem nýrrar framkvæmdastýru félagsins. Agnes hefur töluverða reynslu af verkefnastjórnum, en hún hefur m.a. verið deildarstjóri
Eftir Stefna Hugbúnaðarhús • 4. júlí 2024
Próf f. IPMA D-vottun mán 9.sept kl. 14:00 - Próf f.IPMA C-vottun þri 10.sept kl. 14:00