IPMA hæfniviðmið í verkefnastjórnun

Alþjóðlegir staðlar um hæfni í verkefnastjórnun

Grunnviðmið um hæfni verkefnastjóra

Grunnviðmið IPMA (Individual Competence Baseline – ICB) er alþjóðlegur staðall sem lýsir þeirri hæfni sem þarf til að ná árangri í verkefnastjórnun.

Hæfni verkefnastjóra er skilgreind í 29 hæfniþáttum sem skiptast á þrjú meginhæfnisvið:

  • samhengi (Perspective)
  • fólk (People)
  • framkvæmd (Practice)

ICB er grunnurinn að IPMA-vottunum og tryggir að mat á hæfni verkefnastjóra sé samræmt og viðurkennt á alþjóðavísu. Vottanirnar eru veittar á vegum Verkefnastjórnunarfélags Íslands (VSF).

Sækja grunnviðmið á íslensku

Grunnviðmið fyrir stjórnun verkefna

Hæfniviðmið IPMA fyrir verkefni

Individual Competence Baseline for Project Management lýsir þeirri hæfni sem þarf til að stýra einstökum verkefnum á árangursríkan hátt.

Áherslan er á:

  • skipulag og framkvæmd verkefna
  • stjórnun teymis og hagsmunaaðila
  • afhendingu skilgreindra markmiða innan tíma, kostnaðar og gæða

Þessi staðall er grunnur að vottun verkefnastjóra sem bera ábyrgð á afmörkuðum verkefnum.

Sækja ICB Project

Hæfniviðmið IPMA fyrir verkefnastofna

Hæfniviðmið IPMA fyrir verkefnastofna

Individual Competence Baseline for Programme Management

skilgreinir hæfni til að stýra hópi tengdra verkefna sem saman skapa meiri ávinning en hvert verkefni fyrir sig.

Áherslan er á:

  • samhæfingu margra verkefna
  • stjórnun ávinninga (benefits)
  • breytingastjórnun og stefnumiðaða innleiðingu

Þessi staðall á við þegar markmiðið er að knýja fram breytingar og langtímaáhrif í skipulagsheildum.

Sækja ICB Programme

Add a title

Hæfniviðmið IPMA fyrir verkefnaskrár

Individual Competence Baseline for Portfolio Management lýsir hæfni til að velja, forgangsraða og stýra safni verkefna og verkefnaáætlana í takt við stefnu skipulagsheildar.

Áherslan er á:

  • stefnumiðað val og forgangsröðun verkefna
  • jafnvægi milli áhættu og ávinnings
  • yfirsýn og stjórnun heildarframmistöðu

Þessi staðall er lykill að því að tryggja að rétt verkefni séu framkvæmd á réttum tíma.


Sækja ICB Portfolio

Hefurðu áhuga á alþjóðlegri IPMA vottun?

VSF býður upp á margvíslegar alþjóðlegar vottanir í verkefnastjórnun.

Smelltu á hnappinn til að neðan ef þú vilt vita meira.

Vottanir í verkefnastjórnun