10 08

Kynningarfundur um IPMA vottun verkefnastjóra 10. ágúst 2022

Dagsetning: 10.08.2022
Tími: 12:10 - 12:50

Fundurinn er til kynningar og opnunar á IPMA B, C og D stigs vottunarferli.

Þeir sem skrá sig á kynninguna fá sendan tengil fyrir fundinn. Skráning hér.

Í framhaldi af kynninguni verður tekið við umsóknum til 24. ágúst og próf haldið 5. september.

Umsóknir um IPMA B, C og D stigs vottun skulu berast á netfangið vottun@vsf.is.

Prófin eru rafræn (heimapróf) og fá skráðir próftakar tengil á prófið degi fyrir prófdag en prófið er aðeins aðgengilegt á auglýstum próftíma.