Kynningarfundur um IPMA vottun verkefnastjóra verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateig 9 kjallara, mánudaginn 18. september kl. 12:10.
Fundurinn er til kynningar og opnunar á IPMA B, C og D stigs vottunarferli. Fundurinn er öllum opinn og ekki þarf að skrá sig á hann.
Umsóknir um IPMA B og C stigs vottun skulu berast á netfangið vottun@vsf.is eigi síðar en mánudaginn 9. október.
Umsóknir um IPMA D stigs vottun skal skila mánudaginn 16. október.
Próf verður haldið föstudaginn 27. október kl. 13:00 - 16:00. Prófið er haldið hjá Promennt, Skeifunni 11b, Reykjavík.