Á Degi verkefnastjórnunar þann 17.maí síðast liðinn, afhenti Þór Hauksson formaður Verkefnastjórnunarfélags Íslands, Dr. Helga Þór Ingasyni heiðursviðurkenningu frá IPMA - Alþjóðasamtökum verkefnastjórnunarfélaga. Virðurkenninguna hlýtur Helgi Þór fyrir ötult og mikilvægt starf sitt innan IPMA í þágu rannsókna í verkefnastjórnun. Árið 2013 var Dr. Helgi Þór valinn til setu í rannsóknarráði IPMA og á árunum 2016-2018 var hann rannsóknarstjóri samtakanna. Helgi Þór er annar upphafsmanna MPM-námsins, leiðandi kennari og umsjónarmaður námsins ásamt Dr. Hauki Inga Jónassyni við Háskólann í Reykjavík.