Viðtöl vegna B og C
Lokaáfangi vottunarferilsins vegna B-stigs og C-stigs er viðtal matsmanna með umsækjanda. Þegar viðtalið fer fram eru auk umsækjandans, tveir matsmenn viðstaddir. Það er svo undir umsækjandanum komið hvort hann samþykkir fleiri áheyrendur, sé þess óskað.
Viðtalið hefst á stuttri kynningu umsækjanda á sjálfum sér og helstu verkefnum sem hann/hún hefur komið að. Spurningar matsmanna byggja á umsóknargögnum, sjálfsmati, niðurstöðu úr prófi og skýrslu umsækjandans. Þær geta falið í sér:
- Sannprófun á staðhæfingum í skjölum sem lögð hafa verið fram
- Athugun á hugsanlegu ósamræmi og/eða styrkleikum eða veikleikum í þekkingu og reynslu umsækjanda
- Almenn hæfni umsækjanda við stjórnun verkefna
Markmiðið með viðtalinu:
B stig: að umsækjandi fylgi prófi og verkefnaskýrslu eftir og svari hugsanlegum fyrirspurnum matsmanna. Viðtalið tekur um 1-2 klukkustundir.
Vegna viðtals á B-stigi er ekki ætlast til þess að umsækjandinn komi með sérstaklega undirbúinn fyrirlestur til þess að kynna verkefnið, heldur er öll umfjöllun um verkefnið á þeim nótum að matsmenn og umsækjandi ræða saman. Matsmenn munu síðan ræða við umsækjanda um verkefnið, framvindu þess, forsendur, umhverfi og markmið.
Matsmenn munu leggja sérstaka áherslu á þátt umsækjanda við framkvæmd verkefnisins sem skýrslan fjallar um, þ.e. hlutverk og ábyrgð. Þeir munu ekki leggja áherslu á stærð verkefnisins, heldur leita eftir hæfni umsækjandans sem verkefnisstjóra með því að líta á framlag hans/hennar til verkefnisins.
Eftir viðtalið bera matsmenn saman bækur sínar og birta umsækjandanum niðurstöðu sína í kjölfarið.
C stig: að umsækjandi fylgi verkefnalýsingum, prófi og skýrslu eftir og svari hugsanlegum fyrirspurnum matsmanna. Viðtalið tekur um eina klukkustund.
Vegna viðtals á C-stigi er ekki ætlast til þess að umsækjandinn komi með sérstaklega undirbúinn fyrirlestur, heldur munu matsmenn ræða við umsækjanda um þau verkefni sem liggja að baki skýrslunni, framvindu þeirra, forsendur, og reynslu umsækjandans.
Matsmenn munu leggja sérstaka áherslu á þátt umsækjanda í verkefnunum, þ.e. hlutverk og ábyrgð. Leitað verður eftir hæfni umsækjandans sem verkefnisstjóra með því að líta á framlag hans/hennar til verkefnisins.
Eftir viðtalið bera matsmenn saman bækur sínar og birta umsækjandanum niðurstöðu sína í kjölfarið.













