Beint á leiðarkerfi vefsins

Skýrsla C-stig

Umsækjandi skal hafa eftirfarandi til hliðsjónar við gerð skýrslunnar: 

Útlit og umfang verkefnisskýrslu C-stigs 

  1. Skýrslan skal fjalla um þrjú verkefni
  2. Lágmarksfjöldi hæfnisþátta sem fjallað er um: 12 í tæknivídd, 5 í atferlisvídd og 4 í bakgrunnsvídd
  3. Skýrslan skal prentuð á blaðstærð A-4, öðrum megin á síðuna.  U.þ.b. 5-15 blaðsíður, auk viðauka
  4. Blaðsíðufjöldi miðast við stafastærð 11pts og einfalt línubil
  5. Lágmarksbreidd á spássíum eru: Vinstri spássía: 3 cm, hægri spássía: 2 cm, efri og neðri spássía: 2 cm.
  6. Blaðsíðutal skal koma fram á hverri síðu
  7. Nafn umsækjanda skal vera á forsíðu og nöfn verkefna feitletruð á undan umfjöllun um þau.

Ath. Skýrslan á aðeins að vera 5-15 bls. og hámarksfjöldi viðauka er 10 bls. Megin áherslan á að vera á hlutverk umsækjanda sem verkefnisstjóra í verkefninu – ekki á einstök efnisleg atriði verkefnisins.

Tenging við Hugtakalykil

Nauðsynlegt er að efnismál skýrslunnar sé tengt við hæfnisþætti Hugtakalykilsins. Eru umsækjendur hvattir til að spegla, í skýrslunni, eins marga hæfnisþætti og mögulegt er og gera grein fyrir þeim í meðfylgjandi eyðublaði: Hæfnisþættir í skýrslu 

Júní 2011


Viðburðir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English