Verkefnisskýrsla
Verkefnisskýrslan skal vera skráning/lýsing á verkefni sem hefur verið stýrt af umsækjanda. Umsækjendur um B-stig skulu skrifa skýrslu um 1 valið verkefni, umsækjendur um C-stig skulu skrifa eina skýrslu um 3 verkefni. Verkefnisskýrsluna skal tengja hæfnisþáttum Hugtakalykilsins.
Skýrslan á að staðfesta hæfni umsækjanda, þekkingu og reynslu af aðferðafræði verkefnastjórnunar, auk þess sem að hún á að greina frá því hvaða lærdóm má draga af viðkomandi verkefni. Hún á að lýsa beitingu á hæfni í verkefnastjórnun í raunverulegu verkefni, verkefnastofni eða verkefnisskrá.
Hæfileikinn til að skrifa, kynna og rökstyðja slíka skýrslu er í sjálfu sér einn mælikvarðanna við að meta hæfni verkefnastjóra.
Verkefnisskýrslan á að byggja á verkefni(um) sem umsækjandinn stýrði. Að lágmarki skal skýrslan spegla eftirfarandi:
- Bakgrunn og forsendur (tegund og umfang verkefnis, viðskiptavini þess og aðra mikilvæga hagsmunaaðila, aðföng og flækjustig, etc.)
- Markmið verkefnis og árangur sem náðist
- Skipulag verkefnis
- Hlutverk, verksvið og ábyrgð umsækjanda
- Einkennandi þættir verkefnis
- Niðurstöður/árangur verkefnis eða hvers verkáfanga
- Krefjandi stjórnunarlegir þættir
- Hvernig tekið var á málum og íhugun um árangur þess
- Greining á verkefninu og hvaða lærdóm má draga af því.
Til viðbótar ofangreindu leggja matsmenn áherslu á hvernig greina má hæfni til verkefnastjórnunar út frá framkvæmd verkefnisins. Litið er á tengsl markmiða verkefnisins og samsetningu hópsins sem vann það, og eðli verkefnisins. Þáttur umsækjanda í verkefninu og sérkenni verkefnisins ættu að vera skýr. Í matinu er einnig lögð áhersla á viðleitni umsækjanda til að læra af og deila reynslu sinni.
Tenging við Hugtakalykil
Nauðsynlegt er að efnismál skýrslunnar sé tengt við hæfnisþætti Hugtakalykilsins. Eru umsækjendur hvattir til að spegla, í skýrslunni, eins marga hæfnisþætti og mögulegt er og gera grein fyrir þeim á þar til gerðu eyðublaði - í lýsingu á útliti og umfangi skýrslu, í undirkafla hér með, er greint frá lágmarskröfum til fjölda hæfnisþátta sem skulu vera til umfjöllunar á hvoru stigi fyrir sig.
Sjá jafnframt:
Þrjú eintök af útprentaðri skýrslu á að afhenda umsjónarmönnum vottunar hjá VSF. Eitt eintak af skýrslunni verður geymt í skjalasafni VSF.













