Samsetning prófa
Hvernig eru prófin uppbyggð?
Uppbygging prófa tekur mið af því vottunarstigi sem verið er að meta og eru prófin því ólík að uppbyggingu milli stiganna þriggja og mismunandi kröfur gerðar til svaranna.
Próf á B-stigi
Prófið er samsett af opnum spurningum (einnig oft nefndar ritgerðarspurningar) sem svara þarf með dæmum úr eigin reynslu og verkefnum til úrlausnar (þar sem t.d. vinna þarf svörin upp úr dæmisögum).
Próf á C-stigi
Prófið er samsett af nokkrum lokuðum spurningum (t.d. krossapróf eða rétt/rangt), en megin þunginn er á opnum spurningum (ritgerðarspurningar) sem gjarnan þarf að svara með dæmum úr eigin reynslu og verkefnum til úrlausnar (t.d. dæmisögur og/eða t.d. gantritagerð).
Próf á D-stigi
Prófið er samsett af lokuðum spurningum (krossapróf og rétt/rangt) og opnum ritgerðum, ásamt einu verkefni til úrlausnar.
Dæmi um samsetningu/fjölda spurninga:
| Tegund spurninga |
B |
C |
D |
| Lokaðar spurningar (t.d krossapróf, rétt/rangt) |
5 |
55 |
|
| Opnar spurningar (ritgerðarspurningar) |
4 |
3 |
|
| Verkefni til úrlausnar |
2-3 |
2 |
1 |













