Beint á leiðarkerfi vefsins

Reglur í prófi

Til að tryggja að prófið gangi snuðrulaust fyrir sig hafa verið skilgreindar reglur til handa próf-fulltrúum sem og umsækjendum. Fara ber eftir þessum reglum í hvívetna.

Umsækjandi skal:

  1. mæta til prófs á þeim tíma sem auglýstur er
  2. framvísa skilríkjum
  3. forðast öll samskipti við aðra umsækjendur á meðan á próftíma stendur
  4. forðast alla þá hegðun sem getur haft neikvæð áhrif á aðra umsækjendur eða truflað framgöngu prófsins
  5. fara eftir öllum leiðbeiningum sem koma frá próf-fulltrúum
  6. ekki reykja eða matast (nema með sérstöku leyfi) á meðan á próftíma stendur, gos og smámál (súkkulaði etc.) er leyft
  7. ekki koma með skrifað eða prentað efni í herbergið án sérstaks leyfis (allar bækur, skjalatöskur, farsímar og aðrir hlutir skulu geymdir samkvæmt ábendingum próf-fulltrúa)
  8. almennt haga sér þannig að prófið geti gengið sem best fyrir sig án ama fyrir aðra umsækjendur eða próf-fulltrúa
  9. tryggja að allur ritaður texti frá þeim sé vel læsilegur. Matsmenn geta ákveðið að meta ekki texta sem telst ill-læsilegur

Umsækjandi sem fer ekki eftir ofangreindum reglum getur verið vísað úr prófi

Veikindi umsækjanda

Ef umsækjandi telur að veikindi eða persónuleg vandamál hafi haft áhrif á frammistöðu hans í prófi skal hann láta VSF vita skriflega við fyrsta tækifæri og í öllu falli innan viku frá því að hann tók prófið. Æskilegt er að læknisvottorð fylgi þar sem því verður komið við, þó það berist síðar en tilkynningin.


Viðburðir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English