Beint á leiðarkerfi vefsins

Próf

Prófin meta grunnþekkingu umsækjanda á einstökum þáttum aðferðafræði verkefnastjórnunar og eru unnin að erlendri fyrirmynd. Stýrihópur vottunarmála VSF skipar próf-fulltrúa til yfirsetu á meðan á prófi stendur og skipuleggur stað og stund fyrir prófið. Eftir að umsækjendur hafa lokið prófi er það metið af matsmönnum VSF samkvæmt próf-staðli.

Mælt er með að próftaki hafi lesið Hugtakalykil um verkefnastjórnun.

Prófin eru á íslensku. Hægt er að þreyta prófin á ensku - er umsækjandi beðinn um að taka það fram sérstaklega strax við umsókn ef þess er óskað.

Gögn í prófi og frágangur

Umsækjanda er einungis heimilt að koma með penna og önnur skriffæri í prófið, reglustiku, liti, drykkjar - og matvöru. Einnig er mælt með því að umsækjandi taki með sér eyrnatappa, ef umhverfishljóð eru líkleg til að hafa truflandi áhrif á viðkomandi, en hávaði frá lyklaborðum og umgengni í húsnæði getur verið þó nokkur.  Það er með öllu óheimilt að koma með glósur, bækur, farsíma, tölvur og annað sem getur truflað einbeitingu annara próftaka (hægt er að biðja próf-fulltrúa fyrir hlutina, ef nauðsyn þykir).

Prófin standa yfir í um þrjá klukkutíma að jafnaði.

Umsækjendur bera ábyrgð á að tryggja læsilega skrift á öllum gögnum sem skilað er inn. Matsmenn geta ákveðið að yfirfara ekki próf eða skjöl sem þykja ill-læsileg.

Matið á prófinu

Prófið er yfirfarið og einkunn gefin fyrir hvert svar samkvæmt samræmdum staðli. Spurt er úr öllum þremur víddum Hugtakalykilsins og gerð er krafa um lágmarkseinkunnir í hverri vídd og góðrar meðaltalseinkunnar fyrir prófið í heild.

Annað hvort nær umsækjandi prófi, eða ekki. Umsækjandi fær ekki uppgefna einkunn sína, en ef hann fellur á prófinu, fær hann ábendingar um þau svið verkefnastjórnunar sem hann þarf að leggja meiri áherslu á.


 Próf í IPMA vottun verða haldin miðvikudaginn 8. júní 2011.

Mæting í prófið er kl. 08:30 stundvíslega.Prófið hefst kl. 09:00 og stendur til 12:00.

Umsóknum vegna D-stigs skal skilað fyrir miðvikudaginn 1. júní 2011

Prófið er haldið í Skeifunni 11b, 2.hæð - tölvuskólinn Isoft / Þekking 

27. apríl 2011


Viðburðir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English