Saga vottunar
VSF hefur ásamt öðrum þjóðum unnið ötullega að því að efla verkefnastjórnun á sem flestum sviðum þjóðlífsins. Innan vébanda IPMA® hefur verið unnið að því að móta skilgreiningar fyrir vottun verkefnastjóra á alþjóðlega vísu og hefur VSF frá upphafi tekið virkan þátt í því starfi.
VSF hefur vottað íslenska verkefnastjóra samkvæmt alþjóðlegum kröfum allt frá 1997. Fyrstu vottunarferlin voru með aðstoð erlendra matsmanna sem komu meðal annars frá Þýskalandi, Englandi og Danmörku. Nú er svo komið að reynsla íslenskra matsmanna er orðin mjög góð þannig að ekki er nauðsynlegt að notast við erlenda matsmenn nema einstaka sinnum, þá til að tryggja samræmingu við önnur vottunarferli IPMA®.
Vottun verkefnastjóra hefur vaxið fiskur um hrygg síðustu misserin eins og sjá má í þeim fjölda aðildarfélaga IPMA sem þegar eru farin að votta verkefnisstjóra samkvæmt þessum skilgreiningum. Nú er vottað samkvæmt IPMA staðlinum í 34 aðildarlöndum IPMA®, af þeim rúmlega 40 sem sæti eiga í sambandinu í dag, 6 þjóðir áætla að hefja vottun árið 2007.
Í allt höfðu um 50.000 einstaklingar verið vottaðir samkvæmt IPMA kerfinu í lok ársins 2006 og árið 2007 er áætlað að um 15.000 einstaklingar til viðbótar hljóti vottun víðsvegar um heiminn.
Á línuritinu hér fyrir ofan má sjá þróun mismunandi stiga IPMA vottunar fram til ársins 2006, ásamt áætlun fyrir árið 2007.













