Beint á leiðarkerfi vefsins

Vottun

29.3.2012

Vottunarferli vor 2012

Vekjum athygli á því að næsta IPMA vottunarferli er að hefjast hjá VSF. Ferlið hefst með hefðbundnum kynningarfundi um vottunina mánudaginn 16. apríl í húsi verkfræðingafélagsins að Engjateigi 9 og hefst kl. 12:00.

27.4.2011

Nýtt vottunarferli að hefjast

Nýtt IPMA vottunarferli er að hefjast hjá félaginu - kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 3. maí n.k kl. 15:00.

10.8.2010

Breyting á gildistíma vottunar

Gildistími IPMA vottunar á D-stigi hefur verið styttur.

14.3.2010

Nýtt vottunarferli að hefjast

Nýtt IPMA vottunarferli er að hefjast hjá félaginu - kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 18. mars n.k kl. 13:00.

23.12.2009

IPMA D-vottun í janúar 2010

Próf í IPMA vottun D-stig verður haldið þriðjudaginn 12. janúar 2010.  Umsóknir verða að berast fyrir föstudaginn 8. janúar. 

10.11.2009

Nýjir verkefnastjórar

Á þessu ári hafa tveir einstaklingar staðist IPMA vottun á B-stigi og níu hafa staðist IPMA vottun á C-stigi.  Auk þessa hafa fjölmargir staðist IPMA vottun á D-stigi og er heildarfjöldi vottaðra nú kominn í 438 á þessu 25 afmælisári félagsins.

7.5.2009

IPMA vottun D-stig

Umsóknum vegna IPMA vottunar D-stig verða að berast fyrir 20. maí n.k. Sjá leiðbeiningar um umsóknir um vottun [hér]

1.3.2009

Nýtt vottunarferli að hefjast

Nýtt IPMA vottunarferli er að hefjast hjá VSF.  Kynningarfundur er áætlaður miðvikudaginn 18. mars næst komandi.

31.12.2008

Vottun verkefnastjóra árið 2008

Á árinu 2008 hlutu þrír einstaklingar IPMA vottun á B-stigi, sjö á C-stigi og 72 á D-stigi. Í alls hafa 364 hlotið IPMA vottun frá upphafi vottunarinnar hér á landi. Myndin hér fyrir neðan er tekin við afhendingu vottunarskírteina, 16. desember síðastliðin.

19.11.2008

Næsta vottunarferli

Af óviðráðanlegum orsökum mun næsta IPMA vottunarferli VSF ekki hefjast fyrr en á komandi ári, 2009. Þeir sem þegar eru skráðir á útsendingarlista okkar munu fá tölvupóst þegar málin skýrast, auk þess sem upplýsingar verða settar hér inn á vefinn.

Viðburðir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English