Beint á leiðarkerfi vefsins

Afturköllun vottunar

Umsækjandi um vottun hefur með umsókn sinni staðfest að allar upplýsingar sem gefnar eru í umsóknargögnum eru réttar.

Hafi umsækjandi staðist vottun fær hann afhent skírteini sem staðfestir það. Vottunarskírteinin má ekki misnota með því að gefa rangar upplýsingar um innihald þeirra, handhafa, vottunarstig, gildistíma vottunar eða útgefanda þeirra (vottunaraðila).

Komi í ljós að umsækjandi um vottun hafi gefið rangar upplýsingar í umsókn sinni og/eða að handhafi vottunar hafi gefið rangar upplýsingar um vottun sína getur það leitt til frávísunar úr vottunarferlinu eða tafarlausrar afturköllunar vottunarinnar.

Í kjölfar afturköllunar á vottun eru nafn og aðrar upplýsingar um viðkomandi einstakling fjarlægð af heimasíðu félagsins og tilkynning send til IPMA um að gera slíkt hið sama.


Viðburðir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English