Viðburðir
« Fyrra ár Viðburðir árið 2012 Næsta ár »
Sjá viðburði eftir Árum | Mánuðum | Dögum
Húmor í verkefnastjórnun
Dagsetning: 3.2.2012 - Tími: 8:30
Staðsetning: Betware, Holtasmára 1
VSF og Dokkan bjóða til fundar um "Húmor í verkefnastjórnun".
Gauti Guðmundsson verkefnastjóri hjá Betware og varaformaður VSF ætlar að fjalla um það hvernig húmor nýtist í teymisvinnu og hversu mikilvægt það er fyrir árangur verkefna að það sé gaman í vinnunni.
Lokaverkefni Gauta í MPM náminu fjallaði einmitt um húmor í verkefnastjórnun og er erindið því lauslega byggt á því ásamt reynslu hans hjá Betware.
Fundurinn verður hjá Betware, Holtasmára 1.
Skráning HÉR
Straumlínulögun verkefnastjórnunar
Dagsetning: 31.1.2012 - Tími: 12.00-13.00
Staðsetning: Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1
Straumlínulögun verkefnastjórnunar
Verkefnastjórnun er í stöðugri þróun og sífellt bætast við nýjar aðferðir við stýringu verkefna. Á kynningunni mun Björk Grétarsdóttir verkefnastjóri í Landsbankanum segja frá lokaverkefni sínu við MPM námið. Í verkefninu var leitast við að bera verkefnastjórnun og straumlínustjórnunn saman út frá hæfniauga hugtakalykilsins og 25 helstu einkennum straumlínustjórnunar, og skoðað hvernig kortlagning virðisstrauma og sjónræn stjórnum (VMS töflur) falla að verkefnastjórnun. Þá mun hún einnig segja frá því hvernig þessar aðferðir nýtast henni í störfum sínum sem verkefnastjóri.
Allir sem hafa áhuga á verkefnastjórnun eða notkun á þessum aðferðum eru hvattir til að mæta, viðburðurinn er á vegum Stjórnvísi en félagsmenn VSF eru að sjálfsögðu velkomnir.
Hægt er að skrá sig HÉR













