VSF
21.10.2010
Stýrifundur IPMA í Reykjavík
VSF skipulagði tvo stóra viðburði í september síðastliðnum, ráðstefnuna "Projects Across Borders" og var einnig gestgjafi stýrifundar IPMA (Council of Delegates). Stýrifundurinn var í fyrsta sinn haldinn á Íslandi. Stýrifundurinn heppnaðist afar vel og fékk félagið góðar þakkir fyrir frá stjórn IPMA fyrir gott skipulag. Þátttakendur voru frá yfir 40 löndum. Helgi Þór Ingason opnaði stýrifundinn með ræðu sem fjallaði um velgengni starfsins á Íslandi. Helstu tíðindi frá stýrifundinum var kosning nýrrar stjórnar. Roberto Mori frá Ítalíu var kosinn forseti samtakanna. Brigitte Schaden var kosin formaður CoD. Aðrar niðurstöður kosninganna má sjá á fréttasíðu IPMA. Hefðbundið stjórnarstarf fór fram á fundinum. Mikið starf fór auk þess fram í vinnuhópum tengdum vottun, Young Crew, staðlamálum (ISO21500). Hópurinn fór út að borða saman tvö kvöld, á Silfur og í Fjörukrána. Nokkrar myndir voru teknar við þetta tækifæri. Sjá fleiri fyrir neðan.













