VSF
14.2.2012
Aðalfundur VSF 29.02.2012
Þann 29. Febrúar næstkomandi kl. 17 verður aðalfundur VSF haldinn í húsakynnum Verkfræðingafélags Íslands að Engjateig 9. 105 Reykjavík (kjallara)
Dagskrá aðalfundar:
a. kosning fundarstjóra og fundarritara
b. skýrsla stjórnar
c. endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
d. kosning stjórnar
e. kosning varamanns
f. kosning endurskoðenda
g. drög að fjárhagsáætlun næsta árs, ásamt tillögu að félagsgjaldi
h. lagabreytingar
i. ákvörðun félagsgjalda
j. önnur mál
Skráning hér
12.2.2012
Framkvæmdastjóri VSF
Theodór Ottósson
Það er stjórn VSF mikill heiður að tilkynna að langþráður draumur félagsins er loksins orðinn að veruleika. Föstudaginn 3. febrúar 2012 var undirritaður ráðningarsamningur við Theodór Ottósson viðskiptafræðing. Theodór vinnur í umboði stjórnar VSF og verður með umsjón með starfsemi og rekstri félagsins, félagaþjónustu og stuðning við verkefni VSF. Stjórn VSF bindur vonir við að þetta muni efla félagaþjónustu til muna. Við bjóðum Theodór hjartanlega velkominn í okkar raðir.
Fyrir hönd stjórnar,
Ylfa Thordarson, formaður VSF.













