Beint á leiðarkerfi vefsins

VSF

28.3.2012

Sigurður Ragnarsson fær A vottun

Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri hjá ÍAV, fyrstur Íslendinga til að hljóta alþjóðlega A stigs vottun sem verkefnastjóri

7.3.2012

Ný stjórn kjörin

Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Verkefnastjórnunarfélagsins 29. feb. sl. Nokkur breyting varð á stjórninni og er þeim sem gengu úr stjórn þökkuð góð og óeigingjörn störf í þágu félagsins. Nýir stjórnarmeðlimir eru boðnir velkomnir til starfa. Ný stjórn hefur skipt með sér verkum, sjá http://vsf.is/um-vsf/stjorn-vsf/

14.2.2012

Aðalfundur VSF 29.02.2012

Þann 29. Febrúar næstkomandi kl. 17 verður aðalfundur VSF haldinn í húsakynnum Verkfræðingafélags Íslands að Engjateig 9. 105 Reykjavík (kjallara)

 

Dagskrá aðalfundar:

a. kosning fundarstjóra og fundarritara

b. skýrsla stjórnar

c. endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar

d. kosning stjórnar

e. kosning varamanns

f. kosning endurskoðenda

g. drög að fjárhagsáætlun næsta árs, ásamt tillögu að félagsgjaldi

h. lagabreytingar

i. ákvörðun félagsgjalda

j. önnur mál

 

 Skráning hér

12.2.2012

Framkvæmdastjóri VSF

    

Theodór Ottósson 

 

Það er stjórn VSF mikill heiður að tilkynna að langþráður draumur félagsins er loksins orðinn   að veruleika. Föstudaginn 3. febrúar 2012 var undirritaður ráðningarsamningur við Theodór Ottósson viðskiptafræðing. Theodór vinnur í umboði stjórnar VSF og verður með umsjón með starfsemi og rekstri félagsins, félagaþjónustu og stuðning við verkefni VSF. Stjórn VSF bindur vonir við að þetta muni efla félagaþjónustu til muna. Við bjóðum Theodór hjartanlega velkominn í okkar raðir.

Fyrir hönd stjórnar,

Ylfa Thordarson, formaður VSF.

27.1.2012

Verkefnastjórnunarfélag Íslands kallar eftir liðsauka

Verkefnastjórnunarfélag Íslands (VSF) óskar eftir að ráða öflugan einstakling til fjölbreyttra starfa í þágu félagsins. Reiknað er með hálfu starfi sem felur í sér umsjón með starfsemi og rekstri félagsins, félagaþjónustu og stuðningi við verkefni VSF í nánu samstarfi við stjórn.

Umsækjandi -
- hefur brennandi áhuga á verkefnastjórnun;
- hefur skipulegt verklag og skapandi hugsun að leiðarljósi;
- hefur hlotið IPMA vottun (að lágmarki D stigs vottun);
- nýtur sín í lifandi og lýðræðislegu starfi frjálsra félagasamtaka;
- getur hafið störf sem fyrst.

Áhugasamir eru beðnir um að slá á þráðinn til Jóns Arnar í síma 8646668 eigi síðar en 1. febrúar nk.


Viðburðir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English