VSF
19.9.2011
Verkefnateymið og kostnaðarstýring (Project Team Management & Cost Engineering)
Verkefnastjórnunarfélag Íslands mun halda sína árlegu ráðstefnu fimmtudaginn 22. september næstkomandi kl.13:00-17:00 á 20.hæð í Turninum, Kópavogi. Yfirskrift ráðstefnunnar verður Verkefnateymið og kostnaðarstýring (Project Team Management & Cost Engineering). Stjórnin hvetur alla til að kynna sér dagskrána nánar sem má sjá hér og nánari upplýsingar um fyrirlesara má sjá hér.
22.5.2011
Breytingar á stjórn VSF
22.3.2011
Nýir stjórnarmenn VSF
Á aðalfundi félagsins þann 23.febrúar síðastliðinn urðu eftirfarandi breytingar á stjórn félagsins:
Erla Sigríður Gestsdóttir, Aðalheiður Sigurðardóttir og Ásdís Elva Guðmundusdóttir gáfu ekki kost á sér til frekari stjórnarsetur.
Kosnir voru inn nýir menn í stjórn, Gauti Guðmundsson, Jón Örn Jónsson og Óðinn Albertsson.
Fráfarandi stjórnarmönnum er þakkað fyrir störf sín í þágu félagsins og um leið eru nýir stjórnarmenn boðnir velkomnir til starfa.
3.2.2011
Aðalfundur VSF 2011
Þann 23. Febrúar næstkomandi kl. 17 verður aðalfundur VSF haldinn í húsakynnum Verkfræðingafélags Íslands að Engjateig 9. 105 Reykjavík
Dagskrá aðalfundar:
a. kosning fundarstjóra og fundarritara
b. skýrsla stjórnar
c. endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
d. kosning stjórnar
e. kosning varamanns
f. kosning endurskoðenda
g. drög að fjárhagsáætlun næsta árs, ásamt tillögu að félagsgjaldi
h. lagabreytingar
i. ákvörðun félagsgjalda
j. önnur mál
Að hefðbundinni fundardagskrá lokinni mun Björn Johannessen landslagsarkitekt flytja fyrirlesturinn "Áhættustýring í framkvæmdum með áherslu á öryggi, heilsu og umhverfi"
Björn er eins og áður segir landslagsarkitekt og starfar hjá Verkís, hann er einnig vottaður verkefnastjóri og félagsmaður VSF.
Skráning fer fram hér













