VSF
21.10.2010
Stýrifundur IPMA í Reykjavík
VSF skipulagði tvo stóra viðburði í september síðastliðnum, ráðstefnuna "Projects Across Borders" og var einnig gestgjafi stýrifundar IPMA (Council of Delegates). Stýrifundurinn var í fyrsta sinn haldinn á Íslandi. Stýrifundurinn heppnaðist afar vel og fékk félagið góðar þakkir fyrir frá stjórn IPMA fyrir gott skipulag. Þátttakendur voru frá yfir 40 löndum. Helgi Þór Ingason opnaði stýrifundinn með ræðu sem fjallaði um velgengni starfsins á Íslandi. Helstu tíðindi frá stýrifundinum var kosning nýrrar stjórnar. Roberto Mori frá Ítalíu var kosinn forseti samtakanna. Brigitte Schaden var kosin formaður CoD. Aðrar niðurstöður kosninganna má sjá á fréttasíðu IPMA. Hefðbundið stjórnarstarf fór fram á fundinum. Mikið starf fór auk þess fram í vinnuhópum tengdum vottun, Young Crew, staðlamálum (ISO21500). Hópurinn fór út að borða saman tvö kvöld, á Silfur og í Fjörukrána. Nokkrar myndir voru teknar við þetta tækifæri.
Sjá fleiri fyrir neðan.
5.10.2010
Vel sótt haustráðstefna VSF
Þann 23.september síðastliðinn fór fram á vegum VSF ráðstefnan Projects Across Borders þar sem Brigitte Schaden formaður IPMA kom fram sem heiðursgestur auk þess sem átta aðrir einkar frambærilegir fyrirlesarar stigu á stokk. Ráðstefnan var mjög vel sótt og höfðu ráðstefnugestir orð á því að viðburðurinn hefði heppnast vel í alla staði, VSF þakkar ráðstefnugestum, styrktaraðilum, fyrirlesurum og öllum þeim sem að viðburðinum komu fyrir sitt framlag.
2.9.2010
Projects Across Borders
Þann 23.september næstkomandi mun VSF standa fyrir haustráðstefnu félagsins sem ber yfirskriftina Projects Across Borders. Ráðstefnan, sem haldin verður á ensku, fjallar um þær áskoranir sem verkefnastjórar sem starfa í alþjóðlegu umhverfi standa frammi fyrir. Fyrirlesarar ráðstefnunnar eru jafn ólíkir og þeir eru margir, sérfræðingar úr röðum IPMA, ráðgjafar, háskólakennarar og verkefnastjórar úr ólíkum greinum atvinnulífsins, en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa stýrt eða komið að alþjóðlegum verkefnum. Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru bæði innlendir sem erlendir en þeir eru: Birgitte Schaden, David Lynch, Finn Djurslev, Miles Shepherd, William Duncan, Ólafur Loftsson, Gísli H. Guðmundsson, Kolbrún Hrafnkelsdóttir og Rafn Kjartansson. Skráning er hafin á www.verkefnastjornun.is.
18.8.2010
VSF á Facebook
Verkefnastjórnunarfélag Íslands á Facebook.
Stofnaður hefur verið hópur Verkefnastjórnunarfélagsins á Facebook og eru allir velkomnir að skrá sig og vera með, það er von stjórnarinnar að félagsmenn skrái sig og skiptist á skoðunum og komi á framfæri því sem áhugavert er á sviði verkefnastjórnunar. Allir að skrá sig í hópinn hér.
25.6.2010
Spennandi tímar framundan hjá VSF
Undanfarna mánuði hefur VSF verið að vinna að skipulagningu funds aðildarfélaga alþjóðasamtaka um verkefnastjórnun (Council of Delegates - CoD). VSF er aðili að alþjóðasamtökunum (IPMA) og er nú í fyrsta sinn veittur sá heiður að standa að skipulagningu og vera gestgjafi CoD, það er markmið félgagsins að skipulagning fundarins og móttaka gestanna verði landi og þjóð auk VSF til mikils sóma í einu og öllu. Á ráðstefnunni sem haldin verður dagana 24.-26. september má ætla að komi í kringum 150 gestir frá 40 löndum og því í miklu að snúast hjá skipuleggjendum okkar í stjórninni þessa dagana, fundurinn mun fara fram á Hótel Loftleiðum þar sem áætlað er að gestirnir muni einnig gista. Samhliða þessu mun haustráðstefna VSF fara fram þann 23.september og verða þar í boði virkilega spennandi fyrirlesarar, yfirskrift ráðstefnunnar er Projects Across Borders og mun hún fara fram á ensku.
23.4.2010
Vel sóttur hádegisfyrirlestur
Síðasti hádegisfyrirlestur þann 25.mars síðastliðinn var ágætlega sóttur, en um 30 manns komu til að hlýða á fyrirlestur Hildar Ingvarsdóttur verkfræðings hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Fjallaði hún um uppbygginu fráveitumannvirkja á Vesturlandi og hversu krefjandi það er að stýra slíku verkefni í núverandi efnahagsástandi. Einnig fjallaði hún um uppbyggingu verkefnavefs sem var með þeim fyrstu sem settur var á laggirnar hjá fyrirtækinu.
VSF þakkar Hildi Ingvarsdóttur kærlega fyrir fyrirlesturinn.
17.3.2010
Verkefnastjórn í stóru framkvæmdaverki - Verkefnavefur
Næsti hádegisfyrirlestur verður haldinn fimmtudaginn 25.mars n.k. kl.12 í húsi Verkfræðingafélagsins að Engjateigi 9. Hildur Ingvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur mun fjalla um stórt verkefni sem hún hefur með höndum en það snýst um uppbyggingu fráveitu á veitusvæðum OR á Vesturlandi og hefur staðið frá árinu 2006. Hildur mun fjalla um rekstur verkefnisins á bjartsýnum tímum sem og krepputímum og þær breytingar sem þurft hefur að gera á keyrslu verkefnisins til að aðlagast breyttum efnahagsaðstæðum. Eins kynnir hún stuttlega Sharepoint verkefnavef sem þróaður hefur verið hjá Orkuveitunni og hefur reynst vel sem upplýsingamiðlun og stjórntæki í verkinu. Skráning fer fram hér.
1.3.2010
Aðalfundur 2010
12.2.2010
Aðalfundur 2010
12.2.2010
Vellukkuð fyrirtækjaheimsókn
22.1.2010
Fyrirtækjaheimsókn í Íslandsbanka
Íslandsbanki verður heimsóttur 28.jan kl.17.
Unnur Helga Kristjánsdóttir gæðastjóri Íslandsbanka mun fjalla um gæðamál innan bankans og Viktor Steinarsson verkefnastjóri mun fjalla um Agile verkefnastjórnun hjá hugbúnaðardeild bankans.Fyrirlesturinn verður haldinn á Lynghálsi 4, 3.hæð, þar sem tölvudeild Íslandsbanka er til húsa. Boðið verður uppá veitingar.Skráning fer fram hér.
19.1.2010
VSF og Morten Fangel
Í tilefni af 25 ára afmæli Verkefnastjórnunarfélagsins, þá ákvað stjórn þess að hitta einn stofnfélaga þess og heiðursfélaga, Morten Fangel, (framkvæmdastjóra danska Verkefnisstjórnunarfélagsins). Morten er Íslendingum að góðu kunnu fyrir framlag sitt til greinarinnar hér á landi í formi kennslu og ráðgjafar, en hann heimsækir landið reglulega. Félagið ákvað í tilefni af tímamótunum að hitta Morten og veita honum viðurkenningu fyrir sitt framlag og þakka góð störf í þágu félagsins í gegnum tíðina. Myndirnar eru teknar af þessu tilefni.













