Beint á leiðarkerfi vefsins

VSF

29.9.2009

Vel sótt ráðstefna

Um 200 manns sóttu sameiginlegu ráðstefnu VSF og MPM félagsins þann 24.september síðastliðinn  (www.verkefnastjornun.is).  Fyrirlesarar voru hvort tveggja erlendir og innlendir sérfræðingar og voru umfjöllunarefni fjölbreytt og snertu á verkefnastjórnun innan atvinnulífsins sem og akademíu.  25 ára afmæliskokteill VSF sem haldinn var í kjölfar ráðstefnunnar var vel sóttur og formaður VSF lagði til í ávarpi sínu að ráðstefna þessi verði gerð að árlegum viðburði hér eftir og óskaði eftir viðbrögðum félagsmanna varðandi þá tillögu. 

28.9.2009

Fréttabréf IPMA

Út er komið fréttabréf IPMA fyrir 3.ársfjórðung 2009.  Það er að finna hér.

17.9.2009

Undirritun samnings um vottun

Þann 14.september síðastliðinn, endurnýjaði formaður VSF Reynir Sigurðsson samning um framkvæmd vottunarmála á vegum félagsins. 

15.9.2009

Vetrarstarf og 25 ára afmæli

Ágætu félagsmenn þá er sumarið á enda og vetrarstarf félagsins að fara af stað.  Þetta starfsár er sérstakt að því leyti að í ár eru 25 frá því að félagið var stofnað og mun dagskrá vetrarins bera nokkurn keim af því.

2.9.2009

Global Project Management Survey

Vinsamlegast svarið neðangreindri könnun, en hún er hluti af alþjóðlegri rannsókn og mikilvægt að svör berist frá Íslandi um verkefnastjórnun.

2.9.2009

Ráðstefnuvefur

Upplýsingar um ráðstefnuna "Verkefnastjórnun á tímum breytinga" er að finna á nýjum ráðstefnuvef.


Viðburðir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English