VSF
22.12.2009
Jólakveðja
Stjórn VSF sendir félagsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða og vonandi mun verkefnastjórnun halda áfram að blómstra á árinu 2010.
9.12.2009
Heimsókn í Össur
Fimmtudaginn 3.desember var félagsmönnum boðið í heimsókn í Össur hf. Þar fengum við kynningu frá starfsmönnum þróunardeildar um fyrirtækið og hvernig verkefnastjórnun er háttað innan þess. Meðal annars hvernig fyrirtækið velur hvaða verkefni eru valin úr aragrúa hugmynda og á þróunarferlinum sem þeir styðjast við allt frá hugmynd að fullbúinni vöru. Heimsóknin var ánægjuleg og ágætlega sótt og er stefnan tekin á að fara í fleiri slíkar á nýju ári. Við þökkum Össuri kærlega fyrir boðið.













