VSF
22.12.2009
Jólakveđja
Stjórn VSF sendir félagsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða og vonandi mun verkefnastjórnun halda áfram að blómstra á árinu 2010.
9.12.2009
Heimsókn í Össur
Fimmtudaginn 3.desember var félagsmönnum boðið í heimsókn í Össur hf. Þar fengum við kynningu frá starfsmönnum þróunardeildar um fyrirtækið og hvernig verkefnastjórnun er háttað innan þess. Meðal annars hvernig fyrirtækið velur hvaða verkefni eru valin úr aragrúa hugmynda og á þróunarferlinum sem þeir styðjast við allt frá hugmynd að fullbúinni vöru. Heimsóknin var ánægjuleg og ágætlega sótt og er stefnan tekin á að fara í fleiri slíkar á nýju ári. Við þökkum Össuri kærlega fyrir boðið.
24.11.2009
Heimsókn í Össur
Félagsmönnum er boðið að heimsækja Össur hf. fimmtudaginn 3.desember kl.17:00. Össur er alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar á heilbrigðissviði og hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Össur er leiðandi í hönnun stoðtækja og annar stærsti stoðtækjaframleiðandi í heiminum. Við fáum að fræðast um fyrirtækið og kynnt verður starfsemi verkefnastofu þróunardeildar. Skráning fer fram hér.
13.10.2009
Council of Delegates í Dublin
29.9.2009
Vel sótt ráđstefna
Um 200 manns sóttu sameiginlegu ráðstefnu VSF og MPM félagsins þann 24.september síðastliðinn (www.verkefnastjornun.is). Fyrirlesarar voru hvort tveggja erlendir og innlendir sérfræðingar og voru umfjöllunarefni fjölbreytt og snertu á verkefnastjórnun innan atvinnulífsins sem og akademíu. 25 ára afmæliskokteill VSF sem haldinn var í kjölfar ráðstefnunnar var vel sóttur og formaður VSF lagði til í ávarpi sínu að ráðstefna þessi verði gerð að árlegum viðburði hér eftir og óskaði eftir viðbrögðum félagsmanna varðandi þá tillögu.
17.9.2009
Undirritun samnings um vottun
Ţann 14.september síðastliðinn, endurnýjaði formaður VSF Reynir Sigurðsson samning um framkvæmd vottunarmála á vegum félagsins.
15.9.2009
Vetrarstarf og 25 ára afmćli
2.9.2009
Global Project Management Survey
Vinsamlegast svarið neðangreindri könnun, en hún er hluti af alþjóðlegri rannsókn og mikilvægt að svör berist frá Íslandi um verkefnastjórnun.
2.9.2009
Ráđstefnuvefur
Upplýsingar um ráðstefnuna "Verkefnastjórnun á tímum breytinga" er að finna á nýjum ráðstefnuvef.
20.8.2009
Ráđstefna VSF og MPM félagsins
1.7.2009
Íslensk grein í Project Management Journal
25.6.2009
Nýr stađall um verkefnastjórnun ISO21500
18.6.2009
PRINCE 2009
Ţriðjudaginn 16. júní kom út uppfærð og breytt útgáfa af PRINCE2 aðferðafræðinni - PRINCE 2009. Nýrri útgáfu hefur verið skipt í tvær handbækur. "Directing Successful Projects with PRINCE2" og "Manageing Successful Projects with PRINCE2". Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Office of Governance Commerce sem er eigandi aðferðafræðinnar.
5.6.2009
PM World Today eJournal - June 2009
Út er komið nýtt fréttabréf PM World. Rafrænt afrit af fréttabréfinu má nálgast hér.
Fréttabréfið spannar ýmsa þætti verkefnsstjórnunar og er í þessu tölublaði meðal annars fjallað um:
2.6.2009
Vor í íslenskri verkefnastjórnun - samantekt
18.5.2009
Vor í íslenskri verkefnastjórnun
14.5.2009
IPMA Conference of Delegates haldin í Nürnberg 28. til 29. mars 2009
7.5.2009
Grísirnir ţrír og óvissa í áćtlanagerđ
Við hnutum um ţennan hnyttna pistil á ferð okkar um veraldarvefinn. Þarna er á ferðinni skemmtileg samlíking þar sem óvissa í áætlanagerð er sett í samhengi við klassískt ævintýri.
1.4.2009
Project World 2.0 - Lykilfyrirlesarar
IPMA hefur birt lista yfir lykilfyrirlesara á ráðstefnunni sem haldin verður í Helsinki, Finnlandi 15-17. júní næstkomandi. Framlag á ráðstefnunni kemur frá yfir 40 löndum. En lykilfyrirlesarar eru eftirfarandi:
1.4.2009
Project are about humans - We help you deal with that...
Við rákumst á þessa skemmtilegu bloggsíðu um verkefnastjórnun hugbúnaðarverkefna á vafri um alheimsnetið í dag og langaði að deila henni með ykkur. Þarna er m.a. að finna video viðtöl við reynslubolta úr heimi verkefnastjórnunar, eins og t.d. Jerry Manas höfund Napoleon on Project Management, fría e-bók eftir höfund síðunnar og alls kyns skemmtilegar pælingar.
22.3.2009
IPMA vottađir verkefnastjórar - könnun
Sigurður Fjalar Sigurðarson er meistaranemi í iðnaðarverkefni og er um þessar mundir að vinna að rannsóknarverkefni um að hversu miklu leyti verkefnastjórar meta siðferði í þeim verkefnum sem þeir koma að og stýra. Af þessu tilefni óskar hann eftir að IPMA vottaðir verkefnastjórar aðstoði hann við rannsóknina og svari stuttum spurningalista á netinu. Könnunin á ekki að taka lengur en 10-15 mínútur í vinnslu. Könnunina er hægt að nálgast hér.
5.3.2009
IPMA World Congress 2009
3.3.2009
Ađalfundur 2009
Fimmtudaginn 26.febrúar var aðalfundur VSF haldinn. Ný stjórn var kjörin á aðalfundi. Úr stjórn gengu Hugrún Gunnarsdóttir, Karl Ásmundsson og Guðmundur Hannesson. Nýjir stjórnarmeðlimir eru Viktor Steinarsson og Dirk Lubker. Nýir varamenn voru kjörnir Haukur Óskarsson og Aðalheiður Sigurðardóttir, fráfarandi formaður. Ný stjórn þakkar fráfarandi stjórnarmeðlimum vel unnin störf og býður nýja stjórnarmenn velkomna til starfa.
Að venjulegum aðalfundarstörfum loknum flutti dr. Haukur Ingi Jónasson áhugavert erindi um verkefnið endurreisn Íslands.













