Beint á leiðarkerfi vefsins

VSF

27.1.2012

Verkefnastjórnunarfélag Íslands kallar eftir liðsauka

Verkefnastjórnunarfélag Íslands (VSF) óskar eftir að ráða öflugan einstakling til fjölbreyttra starfa í þágu félagsins. Reiknað er með hálfu starfi sem felur í sér umsjón með starfsemi og rekstri félagsins, félagaþjónustu og stuðningi við verkefni VSF í nánu samstarfi við stjórn.

Umsækjandi -
- hefur brennandi áhuga á verkefnastjórnun;
- hefur skipulegt verklag og skapandi hugsun að leiðarljósi;
- hefur hlotið IPMA vottun (að lágmarki D stigs vottun);
- nýtur sín í lifandi og lýðræðislegu starfi frjálsra félagasamtaka;
- getur hafið störf sem fyrst.

Áhugasamir eru beðnir um að slá á þráðinn til Jóns Arnar í síma 8646668 eigi síðar en 1. febrúar nk.

19.9.2011

Verkefnateymið og kostnaðarstýring (Project Team Management & Cost Engineering)

Verkefnastjórnunarfélag Íslands mun halda sína árlegu ráðstefnu fimmtudaginn 22. september næstkomandi kl.13:00-17:00 á 20.hæð í Turninum, Kópavogi. Yfirskrift ráðstefnunnar verður Verkefnateymið og kostnaðarstýring (Project Team Management & Cost Engineering). Stjórnin hvetur alla til að kynna sér dagskrána nánar sem má sjá hér og nánari upplýsingar um fyrirlesara má sjá hér.

22.5.2011

Breytingar á stjórn VSF

 Breytingar hafa orðið á stjórn VSF. Á síðasta stjórnarfundi var Ylfa Thordarson kosin formaður og Gauti Guðmundsson varaformaður. Jón Örn Jónsson sem áður var varamaður í stjórn tók sæti í stjórn félagsins. Stjórn VSf þakkar Dirk Lübker fyrir góð störf í þágu félagsins.

22.3.2011

Nýir stjórnarmenn VSF

Á aðalfundi félagsins þann 23.febrúar síðastliðinn urðu eftirfarandi breytingar á stjórn félagsins:

Erla Sigríður Gestsdóttir, Aðalheiður Sigurðardóttir og Ásdís Elva Guðmundusdóttir gáfu ekki kost á sér til frekari stjórnarsetur.

Kosnir voru inn nýir menn í stjórn, Gauti Guðmundsson, Jón Örn Jónsson og Óðinn Albertsson.

Fráfarandi stjórnarmönnum er þakkað fyrir störf sín í þágu félagsins og um leið eru nýir stjórnarmenn boðnir velkomnir til starfa.

3.2.2011

Aðalfundur VSF 2011

   

Þann 23. Febrúar næstkomandi kl. 17 verður aðalfundur VSF haldinn í húsakynnum Verkfræðingafélags Íslands að Engjateig 9. 105 Reykjavík

Dagskrá aðalfundar:

a. kosning fundarstjóra og fundarritara

b. skýrsla stjórnar

c. endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar

d. kosning stjórnar

e. kosning varamanns

f. kosning endurskoðenda

g. drög að fjárhagsáætlun næsta árs, ásamt tillögu að félagsgjaldi

h. lagabreytingar

i. ákvörðun félagsgjalda

j. önnur mál

Að hefðbundinni fundardagskrá lokinni mun Björn Johannessen landslagsarkitekt flytja fyrirlesturinn "Áhættustýring í framkvæmdum með áherslu á öryggi, heilsu og umhverfi"

Björn er eins og áður segir landslagsarkitekt og starfar hjá Verkís, hann er  einnig vottaður verkefnastjóri og félagsmaður VSF.  

Skráning fer fram hér

21.10.2010

Stýrifundur IPMA í Reykjavík

VSF skipulagði tvo stóra viðburði í september síðastliðnum, ráðstefnuna "Projects Across Borders" og var einnig gestgjafi stýrifundar IPMA (Council of Delegates).  Stýrifundurinn var í fyrsta sinn haldinn á Íslandi.  Stýrifundurinn heppnaðist afar vel og fékk félagið góðar þakkir fyrir frá stjórn IPMA fyrir gott skipulag.  Þátttakendur voru frá yfir 40 löndum.  Helgi Þór Ingason opnaði stýrifundinn með ræðu sem fjallaði um velgengni starfsins á Íslandi.  Helstu tíðindi frá stýrifundinum var kosning nýrrar stjórnar.  Roberto Mori frá Ítalíu var kosinn forseti samtakanna.  Brigitte Schaden var kosin formaður CoD.  Aðrar niðurstöður kosninganna má sjá á fréttasíðu IPMA.  Hefðbundið stjórnarstarf fór fram á fundinum.  Mikið starf fór auk þess fram í vinnuhópum tengdum vottun, Young Crew, staðlamálum (ISO21500).  Hópurinn fór út að borða saman tvö kvöld, á Silfur og í Fjörukrána.  Nokkrar myndir voru teknar við þetta tækifæri. 

Sjá fleiri fyrir neðan.  Voting 1

5.10.2010

Vel sótt haustráðstefna VSF

Þann 23.september síðastliðinn fór fram á vegum VSF ráðstefnan Projects Across Borders þar sem Brigitte Schaden formaður IPMA kom fram sem heiðursgestur auk þess sem átta aðrir einkar frambærilegir fyrirlesarar stigu á stokk. Ráðstefnan var mjög vel sótt og höfðu ráðstefnugestir orð á því að viðburðurinn hefði heppnast vel í alla staði, VSF þakkar ráðstefnugestum, styrktaraðilum, fyrirlesurum og öllum þeim sem að viðburðinum komu fyrir sitt framlag.

2.9.2010

Projects Across Borders

Þann 23.september næstkomandi mun VSF standa fyrir haustráðstefnu félagsins sem ber yfirskriftina Projects Across Borders. Ráðstefnan, sem haldin verður á ensku, fjallar um þær áskoranir sem verkefnastjórar sem starfa í alþjóðlegu umhverfi standa frammi fyrir. Fyrirlesarar ráðstefnunnar eru jafn ólíkir og þeir eru margir, sérfræðingar úr röðum IPMA, ráðgjafar, háskólakennarar og verkefnastjórar úr ólíkum greinum atvinnulífsins, en allir eiga þeir það sameiginlegt að hafa stýrt eða komið að alþjóðlegum verkefnum. Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru bæði innlendir sem erlendir en þeir eru: Birgitte Schaden, David Lynch, Finn Djurslev, Miles Shepherd, William Duncan, Ólafur Loftsson, Gísli H. Guðmundsson, Kolbrún Hrafnkelsdóttir og Rafn Kjartansson.  Skráning er hafin á www.verkefnastjornun.is.   

18.8.2010

VSF á Facebook

Verkefnastjórnunarfélag Íslands á Facebook.

 Stofnaður hefur verið hópur Verkefnastjórnunarfélagsins á Facebook og eru allir velkomnir að skrá sig og vera með, það er von stjórnarinnar að félagsmenn skrái sig og skiptist á skoðunum og komi á framfæri því sem áhugavert er á sviði verkefnastjórnunar. Allir að skrá sig í hópinn hér.

25.6.2010

Spennandi tímar framundan hjá VSF

Undanfarna mánuði hefur VSF verið að vinna að skipulagningu funds aðildarfélaga alþjóðasamtaka um verkefnastjórnun (Council of Delegates - CoD). VSF er aðili að alþjóðasamtökunum (IPMA) og er nú í fyrsta sinn veittur sá heiður að standa að skipulagningu og vera gestgjafi CoD, það er markmið félgagsins að skipulagning fundarins og móttaka gestanna verði landi og þjóð auk VSF til mikils sóma í einu og öllu. Á ráðstefnunni sem haldin verður dagana 24.-26. september má ætla að komi í kringum 150 gestir frá 40 löndum og því í miklu að snúast hjá skipuleggjendum okkar í stjórninni þessa dagana, fundurinn mun fara fram á Hótel Loftleiðum þar sem áætlað er að gestirnir muni einnig gista. Samhliða þessu mun haustráðstefna VSF fara fram þann 23.september og verða þar í boði virkilega spennandi fyrirlesarar, yfirskrift ráðstefnunnar er Projects Across Borders og mun hún fara fram á ensku.


Viðburðir

IPMA World congress
www.mpm.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English