Af hverju á ég að taka þátt í starfi VSF?
Margir spyrja hvaða ávinningur sé af því að vera í VSF. Því miður svara margir þessari spurningu eitthvað á þessa leið:
"Ég borga mörg þúsund krónur á ári í félagsgjöld og fæ ekkert út úr því..."
Þetta svar er vissulega rétt í þröngum bókhaldslegum skilningi. Hins vegar er nauðsynlegt að skoða dæmið frá breiðara sjónarhorni. Sá félagsmaður sem velur að standa utan félagsins sparar vissulega félagsgjöldin en nýtur eftir sem áður tilvistar félagsins og þeirra verka sem það stendur fyrir. Samanburðurinn er því aðeins sanngjarn beri menn saman félagsaðild annars vegar og félagið sé ekki til hins vegar.
Lítum dæmi um það hvað félagið gerir:
- Stendur fyrir alþjóðlegri vottun verkefnastjóra
- Stuðlar að íslenskri málnotkun í verkefnastjórnun með útgáfu hugtakalykils
- Býður félagsmönnum reglulega upp á áhugaverða hádegisverðarfyrirlestra
- Heldur árlega málþing um verkfæri verkefnastjórans
- Stendur á fjögurra ára fresti fyrir alþjóðlegri ráðstefnu NORDNET
- Er vettvangur fyrir öflugt tengslanet verkefnastjóra
- Er opinn vettvangur fyrir fyrirtæki og einstaklinga um allt sem varðar verkefnastjórnun
- Tekur þátt í starfi og veitir aðild að erlendum verkefnastjórnunarfélögum (IPMA, PMI, Nordnet, ICEC og Young Crew)
- Starfar með háskólum landsins
- Veitir félagsmönnum upplýsingar um námskeið í verkefnastjórnun
- Miðlar upplýsingum um ýmsan fróðleik og viðburði um allan heim
Næstum allt sem að ofan greinir kemur beint eða óbeint öllum verkefnastjórum til góða. Leggðu því hönd á plóginn, vertu með og mundu að félagið verður sterkara ef þú tekur virkan þátt!













