Young Crew
Young Crew Ísland
Í nóvember 2005 voru stofnuð Young Crew samtök innan IPMA. Voru samtökin stofnuð á Young Crew Workshop sem haldið var í Nýju Dehli á Indlandi í tengslum við 19. heimsráðstefnu IPMA. Alls stóðu um 8 lönd að stofnun þess, þ.á.m. Ísland. Young Crew er samfélag innan IPMA sem er ætlað fyrir fólk á aldrinum 25-35 ára sem hefur áhuga á verkefnastjórnun. Aðalmarkmið Young Crew er að koma á alþjóðarsamskiptaneti milli ungs fólks í verkefnastjórnun, birta greinar og ritgerðir eftir námsmenn tengda efninu og að skipuleggja viðburði eins og IPMA Young Crew Workshop o.fl. Stefnt er að því að stofna Young Crew samtök innan hvers lands sem geta svo starfað saman í gegnum alþjóðasamtökin.
Þann 15.janúar 2007 var Young Crew á Íslandi stofnað. Áhugasamir geta lesið meira um samtökin hér á síðunni eða haft samband á netfangið vsf@vsf.is. Einnig er hægt að skoða heimasíðu alþjóðlegu Young Crew samtakanna á http://www.ipma-yc.org/.













