PRINCE2
Áhugahópur um innleiðingu PRINCE2 verkefnastjórnun
Lengi var starfræktur af félögum VSF áhugahópur um aðferðafræði PRINCE2 í verkefnastjórnun. Hópurinn vann m.a. að því að stuðla að íslenskri málnoktun á hugtökum aðferðafræðinnar. Hópurinn hefur hætt störfum, þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að endurvekja starfið geta haft samband á vsf@vsf.is.
Um PRINCE2 og nokkrir tenglar
PRINCE2 stendur fyrir "PRojects IN Controlled Environments" og er aðferðafræði sem gefin er út af stofnun innan breska ríkisins "Office of Governance Commerce". Aðferðarfræðin sækir uppruna sinn í hugbúnaðarverkefni á vegum breska ríkisins en hefur verið aðlöguð og gerð almenn þannig að henni er hægt að beita á hvers kyns verkefni af öllum stærðum og gerðum. Aðferðafræðin byggir á reynslu, mistökum og sigrum og er reglulega endurskoðuð af nefnd sem skipuð er af fulltrúum 150 stofnanna og fyrirtækja um gjörvalla Evrópu. Aðferðafræðin er "Public Domain" sem þýðir að hana má nota endurgjaldslaust. Verkefnastjórar geta vottað sig í aðferðafræðinni og eru tvö stig vottunar í boði.
- Heimasíðu Office of Governance Commerce má finna hér
- Heimasíða APM Group sem veitir þjónustu í tengslum við aðferðafræðina, s.s. vottun og ráðgjöf, má finna hér
- Regnhlífasíðu fyrir alls kyns fróðleik um PRINCE2 má finna hér
- Netbókaverslun þar sem finna má bækur gefnar út um aðferðafræðina má finna hér













