Beint á leiðarkerfi vefsins

Um VSF

Verkefnastjórnunarfélag Íslands (VSF) var stofnað 23. maí 1984 í því augnamiði að leiða þróun og eflingu verkefnastjórnunar á Íslandi. Félagið er öllum opið og skráðir meðlimir félagsins eru rúmlega 450; einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir.

Tilgangur félagsins er að kynna aðferðir verkefnastjórnunar og efla verkefnastjórnun á sem flestum sviðum atvinnulífsins. Í þessu skyni hefur félagið skilgreind markmið og verksvið.

Markmið félagsins eru:

  • að standa fyrir öflun og dreifingu upplýsinga um verkefnastjórnun
  • að stuðla að menntun og rannsóknum á sviði verkefnastjórnunar
  • að kynna og auka skilning á nauðsyn markvissrar verkefnastjórnunar
  • að stuðla að íslenskri málnotkun á sviði verkefnastjórnunar

Verksvið félagsins eru:

  • að stofna til funda og ráðstefna og stuðla að öflugu fræðslustarfi um verkefnastjórnun  
  • að koma á, taka þátt í og viðhalda samstarfi við innlend og erlend félög með sambærileg markmið
  • að stuðla að endurmenntun verkefnastjóra og skapa félögum möguleika á starfsvettvangi erlendis
  • að standa fyrir vottun verkefnastjóra og tryggja alþjóðlega viðurkenningu hennar
  • að viðhalda gagnabanka um íðorð í verkefnastjórnun
  • að stuðla að virkum áhugahópum um einstaka þætti verkefnastjórnunar

Viðburðir

IPMA World congress
www.mpm.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English