Beint á leiðarkerfi vefsins

Nordnet

NORDNET er vettvangur samvinnu milli verkefnisstjórnunarfélaganna á Norðurlöndunum. NORDNET var komið á fót vorið 1981 og voru félögin í Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð og Noregi með frá byrjun. Árið 1984 bættist Verkefnastjórnunarfélag Íslands í hópinn.

Tilgangur NORDNET samvinnunnar er að stuðla að auknum möguleikum aðildarfélaganna til að auka þekkingu og færni á sviði verkefnisstjórnunar. Hugmyndin er, að sameiginlegur menningarlegur bakgrunnur og skyld tungumál auðveldi félögunum að miðla hvort öðru reynslu og hugmyndum er varða verkefnisstjórnun og þróun á starfsemi og þjónustu félaganna gagnvart félagsmönnum sínum.

Tilgangur NORDNET næst með:

  • Miðlun reynslu um þau málefni og þær aðferðir sem til umfjöllunar eru í starfsemi félaganna
    samningum um gagnkvæm skipti á útgefum blöðum og tímaritum, tilboðum um þátttöku í fundum og ráðstefnum, tilboðum um fría þátttöku á ársfundum o.fl.
  • NORDNET ráðstefnum sem haldnar eru til skiptis af félögunum fimm, í samvinnu við hin félögin
    samþættingu og hugsanlega samstarfi á sviði vottunar verkefnastjóra
    rannsóknarsamvinnu meðal annars með því að halda sameiginlegar rannsóknarnámsstefnur
    alþjóðlegu samstarfi meðal annars með því að samræma þátttöku aðildarfélaganna í samtökum svosem IPMA, ICEC og PMI

Árlega eru haldnir tveir fundir stýrihóps NORDNET, þar sem taka þátt 1-2 fulltrúar hvers aðildarfélags.

Heimasíðu NORDNET er að finna á slóðinni www.pmnordnet.org


Viðburðir


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Information in English