Samstarfsfélög
VSF er aðili að evrópsku alþjóðasamband verkefnastjórafélaga (IPMA) og samstarfshóp verkefnastjórnunarfélaga á Norðurlöndunum, NORDNET. Jafnframt er VSF aðili að alþjóðasambandi kostnaðarverkfræðinga (ICEC). Félagið er einnig í nánu samstarfi við önnur erlend félög, eins og til dæmis við hin amerísku alþjóðasamtök verkefnastjóra (PMI).Samstarfsverkefni VSF við erlend félög eru margþætt, sem dæmi má nefna:
- Ráðstefnuhald
- Alþjóðleg viðurkenning verkefnastjóra
- Samstarf um fyrirlestra á ráðstefnur og námskeið innan aðildarfélaganna
- Gagnkvæm upplýsingamiðlun til félagsmanna aðildarfélaganna













