Hugtakalykill
Verkefnastjórnunarfélag Íslands (VSF) hefur frá stofnun þess 1984 verið í forystu við að innleiða íslenska málnotkun í tengslum við verkefnastjórnun. Þrátt fyrir að til sé orðasafn, þá vantar mikið á að skilgreiningar á hugtökum séu í föstum skorðum. Þetta rit sem nú birtist til umsagnar á vefsvæði VSF er ætlað að bæta þar úr.Þörfin fyrir hugtakalykil er ótvíræð enda beita sífellt fleiri fyrirtæki og stofnanir verkefnastjórnun í daglegu starfi frekar en hefðbundnu stjórnskipulagi. Við gerð þessa lykils hefur verið stuðst við skilgreiningar IPMA (Alþjóða verkefnastjórnunarsambandsins), en einnig hafa flestar skýringarnar verið lagaðar að íslenskum aðstæðum.
Lesendur hugtakalykilsins eru hvattir til að koma athugasemdum á framfæri við VSF.
Smelltu hér til að ná í 4. útgáfu Hugtakalykilsins













