Áhugavert lesefni
IPMA Education and training board- Recommended litterature
IPMA fræðslunefnd hefur tekið saman lista yfir lesefni sem mælt er með, m.a. IPMA Competence Baseline, APM Body of Knowledge o.fl. Bækurnar eru á ensku og þýsku. Listann allan má finna hér.
Napoleon on Project Management
Stjórnendur og verkefnastjórar dagsins í dag geta lært heilmikið af sigrum og mistökum Napoleon Bonaparte. Í þessari bók eru lykilþættir að árangur hans kannaðir sem og hvaða þættir orsökuðu fall hans og settir í samhengi við nútíma verkefnastjórnun. Bókina má bæði finna hjá Bóksölu stúdenta og á Amazon.com.
Project Management in Practice - 3d Edition
Project Management in Practice er handhæg handbók um sem kennir lesandanum praktískar aðferðir við að stýra verkefnisteymum, kostnaði verkefna, aðföngum, óvissu og þeim afurðum sem verkefnið á að skila. Bókin spannar allan líftíma verkefnis og aðferðirnar sem hún kynnir er hægt að beita á allar tegundir verkefna.
Tailoring PRINCE2
PRINCE2 er verkefnastjórnunaraðferð sem er mjög auðvelt að aðlaga að ólíkum verkefnum og ólíkum ferlum fyrirtækja. Hins vegar getur verið erfitt fyrir nýja notendur aðferðarinnar að átta sig á því og þar með er hættan á að aðferðin sé tekin of bókstaflega og kæfi eðlilegan framgang verkefnisns með pappírsflóði mikil. Þessi bók gefur yfirsýn yfir hvernig hægt er að skala aðferðina niður og nota það úr henni sem að við á hverju sinni.
Reinventing Project Management - The Diamond Approach To Successful Growth And Innovation
Hér er á ferðinni sérstaklega áhugaverð bók sem enginn verkefnastjóri ætti að láta fara fram hjá sér. Umhverfi verkefna hefur breyst töluvert á síðustu árum og kallar á nýjar aðferðir við stýringu þeirra. Bókin byggir á viðamikilli rannsókn á 600 verkefnum úr ýmsum atvinnugreinum og kynnir nýtt módel til að ná fram betri árangri í stýringu verkefna.













